Lögregla á Akureyri æfir akstur með forgangi

Lögreglan verður í dag og á morgun með æfingar fyrir hluta af sínum lögreglumönnum akstri með forgangi, innanbæjar á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu embættisins í morgun.
Tilkynningin er svohljóðandi í heild:
Íbúar á Akureyri !
Lögreglan verður í dag og á morgun, þ.e. 18. og 19. ágúst með æfingar fyrir hluta af sínum lögreglumönnum í AMF sem er akstur með forgangi, innanbæjar á Akureyri.
Eftir hádegi báða þessa daga, í skamma stund þó, má reikna með lögreglubifreiðum í forgangsakstri innanbæjar með bæði bláum ljósum og sírenum.
Þetta kann að valda einhverju smávægilegu ónæði en við biðjum alla þá sem upplifa óþægindi af einhverju tagi, að sína okkur þolinmæði vegna þessara æfinga.
Kær kveðja til ykkar allra frá lögreglumönnum LNE.