Fara í efni
Mannlíf

Ljósin tendruð á jólatrénu á laugardag

Fjölmennt var á Ráðhústorgi þegar ljósin voru kveikt á jólatrénu fyrir ári síðan. Mynd: Þorgeir Baldursson

Það styttist í aðventuna og á laugardaginn, 21. nóvember, verður kveikt á ljósunum á jólatrénu á Ráðhústorgi á Akureyri. Athöfnin hefst klukkan 16 og það verður hin fjögurra ára gamla Salka Einarsdóttir sem fær það hlutverk að tendra ljósin.

Að venju verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna í tilefni dagsins. Lúðrasveit Akureyrar leikur jólalög, jólasveinar mæta á svæðið og einnig koma Maddamma úr Skilaboðaskjóðunni, Hans og Gréta, Jóla-Lóla, Krýla og Vettlingur í heimsókn.

Bæjarstjórinn Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, taka þátt í hátíðinni og barnakórar Akureyrarkirkju syngja undir stjórn Guðnýjar Ölmu Haraldsdóttur við undirleik Péturs Nóa Stefánssonar.

Jólatorgið opnað klukkan 15

Jólatorgið verður jafnframt opnað þennan dag og hefst sala í níu skreyttum jólahúsum klukkan 15. Þar verður boðið upp á ýmiss konar varning tengdan jólunum.

Jólatorgið verður opið til klukkan 18 á laugardaginn og verður síðan starfrækt allar helgar fram að jólum. Opnunartíminn verður klukkan 14-18 á laugardögum og 14-17 á sunnudögum.