Fara í efni
Menning

Litla hryllingsbúðin í Samkomuhúsinu í haust

Söngleikurinn Litla hryllingsbúðin verður settur á svið hjá Leikfélagi Akureyrar í haust. Þetta var tilkynnt í dag. Frumsýnt verður í október í Samkomuhúsinu.

Bergur Þór Ingólfsson hefur verið ráðinn leikstjóri. „Ég iða af eftirvæntingu að setja upp skemmtilegasta söngleikinn í fallegasta leikhúsinu. Þetta verður nú eitthvað,“ segir Bergur Þór á vef Menningarfélags Akureyrar í dag.