Fara í efni
Menning

Listasumardagurinn fyrsti vel heppnaður

HAG tríó lék Jónsmessudjass á Minjasafninu og þar var þétt setinn bekkurinn. Myndir: Þorgeir Baldursson

Hið árlega Listasumar gekk í garð á Akureyri í gærkvöldi með nokkrum viðburðum og margt forvitnilegt og skemmtilegt er á dagskrá allt þar til í „sumarlok“ 19. júlí.

Listasumar hófst með opnu húsi í Kaktus, þar sem haldið var upp á Jónsmessu með tilraunakenndu og opnu DJ – VJ kvöldi, opið hús var einnig í Deiglunni, opin vinnustofa í Listasafninu, þar sem gestalistamaðurinn Esther Moises tók á móti gestum, plötusnúðurinn síkáti, Vélarnar, þeytti skífum í Sundlaug Akureyrar og HAK hélt djasstónleika á Minjasafninu.

Þorgeir Baldursson skaust með myndavélina á milli staða.

Dagskrá Listasumars