Menning
Listasumar, Nevermind, djass og opin hús
23.06.2025 kl. 10:15

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Listasumar hefst 24. júní og nóg að sýsla í bænum.
Listasýningar
- Um hádegisbil - Aðalheiður S. Eysteinsdóttir – Sýning og þáttökugjörningur í Kaktus. Föstudaginn 27. júní kl. 12-17.
- Draumsýn á Jónsmessunótt – Rósa Njálsdóttir sýnir ný olíumálverk í Mjólkurbúðinni. Opið verður kl 12-17 laugardaga og sunnudaga og kl 16-18 virka daga til 29. júní.
- Listamannaspjall með Þóru Sigurðardóttur um sýninguna TÍMI - RÝMI - EFNI. Listasafnið, laugardaginn 28. júní kl. 15.00.
- Esther Moises - Opin vinnustofa í Listasafninu á Akureyri – Þriðjudaginn 24. júní kl. 19-23.
- Samsýning norðlenskra listamanna - Mitt rými. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 14. september.
- KIMAREK: Innsetning í tilefni fjörutíu ára starfsferils Margrétar Jónsdóttur. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 28. september.
- Ný heildarsýning í Sigurhæðum og verk Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns. Ath - leiðsögn um sýningarnar á laugardögum á milli 13 - 13.30.
- Línumál - myndlistasýning Vikars Mars í Hofi. Hamragil í Hofi. Sýningin stendur til 23. ágúst.
- TÍMI - RÝMI - EFNI – Sýning Þóru Sigurðardóttur í Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 7. september.
- SAMLÍFI – Sýning Heimis Hlöðverssonar í Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 7. september.
- Safnasafnið – Fjöldi nýrra sýninga.
Tónleikar
- Jónsmessudjass - HAG tríó á Minjasafninu – Þriðjudagskvöld kl. 20-21.
- Miðvikudjass í Móa - Jón Þorsteinn Reynisson, harmonikudjass. Vikulegir síðdegistónleikar á miðvikudögum verða á Móa Bistro í Hofi á meðan Listasumar stendur yfir. Miðvikudaginn 25. júní kl. 16-17.
- Keltnesk sumarljóð - White Raven – Akureyrarkirkja, sunnudaginn 29. júní kl. 17-18.
- Nirvana, Nevermind - Rokkmessa – Græni hatturinn, laugadaginn 27. júní kl. 21.
Listasumar hefst á morgun, þriðjudaginn 24. júní, með fjölbreyttum viðburðum. Listagilið verður lifandi, en það verða opin hús bæði í Kaktus og Deiglunni. Opin vinnustofa verður í Listasafninu. Jazztónleikar verða í Minjasafninu og Vélarnar þeytir skífum á sundlaugarbakkanum í Sundlaug Akureyrar. Myndir: listasumar.is
Aðrir viðburðir
- Opið hús og tónlist í Deiglunni – þriðjudagskvöldið 24. júní kl. 19-22. Tónlist Diönu Sus frá kl. 20.
- Opið kvöld í Kaktus – Haldið upp á Jónsmessu með tilraunakenndu og opnu DJ -VJ kvöldi. Þriðjudag, 24. júní kl. 19-22.
- Vélarnar í Sundlaug Akureyrar – Plötusnúður á bakkanum. Þriðjudagskvöldið 24. júní, kl. 20-21.
- Hrói Höttur á MA túninu – Leikhópurinn Lotta. Þriðjudaginn 24. júní kl. 18.00
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.