Fara í efni
Menning

Listasumar hefst í kvöld á Akureyri

Listasumar hefst með Opnu húsi í Kaktus, þar sem haldið verður upp á Jónsmessu með tilraunakenndu og opnu DJ – VJ kvöldi, og Opnu húsi í Deiglunni, sem hefur öðlast nýtt líf, segir í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ. Opin vinnustofa verður í Listasafninu, þar sem gestalistamaðurinn Esther Moises tekur á móti gestum aftan við safnið, Jónsmessudjass HAG tríós á Minjasafninu auk þess sem plötusnúðurinn síkáti, Vélarnar, mun þeyta skífum í Sundlaug Akureyrar.
„Í dagskrá Listasumars 2025 má greina gríðarlegan fjölbreytileika meðal viðburðanna sem eiga sér stað um allan bæ. Ég mæli heilshugar með að sem flest kynni sér dagskrána þar sem eitthvað er við allra hæfi og auðveldlega hægt að skipuleggja eigið menningar- og skemmtiprógramm innan Akureyrar á meðan hátíðin stendur yfir. Áfram Listasumar,“ segir Jón Haukur Unnarsson, verkefnastjóri Listasumars.
Nóg verður um að vera og vert er að nefna að allir viðburðir Listasumars eru ókeypis. Skoðaðu dagskrána hérna.

 

Skjáskot af viðburðardagatali Listasumars, allt dagatalið má sjá HÉR.