Fara í efni
Menning

Listarölt um helgina – opnar vinnustofur

Listarölt verður haldið á Akureyri og í nágrenni um helgina, laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. október. Þá opna listamenn dyr sínar og gefa gestum kost á að kynnast verkum sínum og ræða listsköpunina. Listaröltið stendur yfir báða dagana frá klukkan 13 til 17, fjölbreytt verk verða til sýnis og einnig verður hægt að kaupa verk beint af listamönnunum. Á hverri vinnustofu verður hægt að kaupa a.m.k. eitt verk á 10.000 krónur.

Gestir geta orðið sér úti um Listaröltsvegabréfið og safnað stimplum í það við heimsóknir á vinnustofur listamannanna. Vegabréfin verða afhent á vinnustofunum og þar geta gestir einnig fengið upplýsingar um hvaða staðir eru með opið og skipulagt leið sína. Á sunnudeginum er hægt að skila inn vegabréfinu á þeirri vinnustofu sem síðast er heimsótt og nokkrir heppnir hreppa happdrættisvinning.  Því fleiri stimplar sem safnast, þeim mun meiri verða möguleikarnir á vinningi.

Hægt verður að safna stimplum í Listaröltsvegabréfið og eiga möguleika á vinningi.

Vinnustofur listamanna sem taka þátt:

  • Kaupvangsstræti 4: Ólafur Sveinsson, Jóna Bergdal Jakobsdóttir
  • Þúfa 46
  • Kaktus
  • Flóra menningarhús
  • Listasafnið á Akureyri
  • Guðmundur Ármann
  • Start Studio
  • Dagný Reykjalín
  • Dyngjan Listhús
  • Katla Karlsdóttir / Kalt Concept
  • Vikar Mar
  • Rösk (opið á sunnudeginum 4. okt)
  • Freyjulundur

Nánari upplýsingar um hverja vinnustofu og þátttöku listamannanna verða birtar á vefsíðunni listarolt.online.