Líflegu Landsmóti skáta lokið - MYNDIR
Landsmóti skáta á Hömrum við Akureyri lauk sl laugardagskvöld með lokahátíð þar sem þátttakendur kvöddu eftir viðburðaríka viku. Í fréttatilkynningu frá mótshöldurum segir að vikan hafi einkennst af ævintýrum, áskorunum og ógleymanlegri samveru. Mótið hafi verið fullt af lífi frá morgni til kvölds og þátttakendur nýtt hvert augnablik til að læra, skapa og njóta útivistar. Skipuleggjendur þakka þátttakendum, sjálfboðaliðum, starfsfólki og gestum fyrir framlag sitt til mótsins og segja Landsmót skáta 2026 hafa tekist afar vel.
Á mótinu gafst þátttakendum kostur á að reyna fyrir sér í fjölbreyttum viðfangsefnum, meðal annars LARP, útieldun, kleinugerð, kolagerð, ratleik um Akureyri, siglingum, gönguferðum, trjáhúsagerð, súrringum, þæfingu, axarkasti og drullubolta. Verkefni sem reyna á hugvit, samvinnu og leiðtogahæfni skátanna. Fjölskyldubúðir voru einnig vel sóttar og fjölmargir gestir heimsóttu mótssvæðið til að kynna sér skátastarfið og taka þátt í dagskrá sem boðið var upp á.
Lokahátíðin var einn af hápunktum mótsins. Þar sá hljómsveit skipuð skátum um tónlistarflutning og skemmtidagskrá, auk þess sem skátar stigu á svið með eigin atriði. Kvöldinu lauk með tónleikum Páls Óskars Hjálmtýssonar, þar sem þátttakendur fögnuðu lokum mótsins með söng og dansi.
Landsmót skáta er stærsti viðburður skátahreyfingarinnar á Íslandi og hefur það að markmiði að efla vináttu, samvinnu, útivist og persónulegan þroska ungs fólks. Að lokinni vikunni héldu þátttakendur heim með nýja reynslu, ný vináttubönd og minningar úr skátastarfinu.
Hér að neðan eru myndir frá ýmsum viðburðum á landsmótinu