Fara í efni
Íþróttir

Léttir og Funi verðlauna knapa

Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ afhenti Viðari Bragasyni, formanni Léttis, viðurkenningarskjal til handa Léttis sem Fyrirmyndarfélag Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Sex knapar voru heiðraðir fyrir árangur sinn á keppnisvellinum á árinu 2026 þegar hestamannafélögin Léttir og Funi héldu sameiginlega árshátíð á Akureyri nýlega.

  • Vera Evi Schneiderchen hlaut nafnbótina Knapi ársins í meistaraflokki hjá Létti

F.v. Vignir Sigurðsson, Karítas G. Thoroddsen og Steingrímur Magnússon sem tók við verðlaunum fyrir hönd Veru Evi Schneiderchen, Knapa ársins 2026 í meistaraflokki hjá Létti.

  • Mathilde Larsen var útnefnd Knapi ársins í áhugamannaflokki hjá Létti

F.v. Aldís Ösp Sigurjónsdóttir, Ásdís Karen Hauksdóttir og Mathilde Larsen, Knapi ársins 2026 í áhugamannaflokki hjá Létti.

  • Hreinn Haukur Pálsson varð Skeiðknapi ársins hjá Létti

F.v. Erlendur Ari Óskarsson, Vignir Sigurðsson og Hreinn Haukur Pálsson, Skeiðknapi ársins 2026 hjá Létti.

Auður Karen Auðbjörnsdóttir var Knapi ársins í ungmennaflokki hjá Létti

Auður Karen Auðbjörnsdóttir, Knapi ársins 2026 í ungmennaflokki hjá Létti.

  • Hjá Funa voru Stefán Birgir Stefánsson útnefndur Knapi ársins í meistaraflokki og Steingrímur Magnússon Knapi ársins í áhugamannaflokki

Stefán Birgir Stefánsson, Knapi ársins 2026 í meistaraflokki hjá Funa, og Steingrímur Magnússon, Knapi ársins 2026 í áhugamannaflokki hjá Funa.

Léttir áfram Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Á árshátíðinni tók Léttir einnig á móti staðfestingu á endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ afhenti Viðari Bragasyni, formanni Léttis, viðurkenninguna.

„Fyrir okkur snýst það að vera Fyrirmyndarfélag ÍSÍ fyrst og fremst um að hafa starfið okkar faglegt, vel skipulagt og í stöðugri þróun. Viðurkenningin veitir okkur ákveðið aðhald og hjálpar okkur að tryggja að umgjörðin utan um félags- og íþróttastarfið sé eins góð og kostur er fyrir félagsmenn okkar,“ segir Viðar Bragason í fréttatilkynningu frá Létti og Funa.

Sameiginleg árshátíð hestamannafélaganna

Árshátíð Léttis og Funa var fjölmenn og velheppnuð og jafnframt gott tækifæri fyrir félagsmenn beggja félaga til að hittast utan hesthúsanna og efla tengslin sín á milli. Gestir gæddu sér á kræsingum af hlaðborði og nutu fjölbreyttrar skemmtidagskrár. Karlakór Eyjafjarðar söng fyrir gesti, Sæþór Már Hinriksson var veislustjóri og Danssveit Dósa sá um fjörið á dansgólfinu.