Kveðja vinnustað til áratuga með listsýningu
Löng hefð er fyrir því að fólk sé látið hlaupa apríl á fyrsta degi þess góða mánaðar en listsýning í húsi Trésmiðjunnar Ýmis við Furuvelli á Akureyri er ekki gabb; þessi sögulega trésmiðja er vissulega óvenjulegur sýningarsalur, en viðburðurinn er heilagur sannleikur, þótt sýningin verði opnuð á miðvikudaginn, 1. apríl.
Valdimar Jóhannsson stofnaði Trésmiðjuna Ými árið 1966 ásamt Snorra heitnum Rögnvaldssyni félaga sínum. Þengill, sonur Valda, hóf störf á Ými tveimur árum síðar og þar hafa feðgarnir unnið saman síðan. Valdi á Ými hefur sem sagt starfað í 60 ár í húsinu sem þeir Snorri reistu, og Þengill í 58 ár. „Ég hef hvergi unnið annars staðar,“ sagði Þengill þegar blaðamaður hitti þá feðga á Furuvöllunum.
„Ekki nema 98 ára“
Mikið var að gera við smíði húsgagna og innréttinga á sínum tíma en lítið sem ekkert í seinni tíð og undanfarin ár hafa feðgarnir unnið tveir í húsinu við smíðar af ýmsu tagi. „Húsið var orðið alltof stórt fyrir okkur,“ segir Þengill. Ekki er heldur ólíklegt að þeir hyggist eitthvað hægja á, Þengill verður 75 ára síðar á árinu og Valdi er „ekki nema 98 ára“ eins og sonur hans segir. Valdimar er fæddur í september 1927 og verður því 99 ára í haust!

Þengill Valdimarsson við eigin ljósmyndir sem búið er að hengja upp á Ýmishúsinu.
Komið er að kaflaskilum. Feðgarnir hafa selt húsið, afhenda það fljótlega og eftir að það var að mestu rýmt kviknaði sú hugmynd að nota tækifærið og halda sýningu á listaverkum.
- Þengill hefur lengi verið ástríðufullur áhugaljósmyndari auk þess að búa til „litaprufur“ eins og hann kallar myndir sem hann hefur lengi gert með því að spreyja litum á striga, og margir muna án efa eftir. Hvort tveggja verður á sýningunni, ljósmyndir og litaprufur.
- Einnig er búið að hengja upp verk Ingunnar Jensdóttur leikkonu sem fengist hefur við myndlist til fjölda. Um er að ræða vatnslita-og olíumyndir.
- Kolbrún Ingólfsdóttir sýnir nytja- og listmuni úr endurunnu gleri. Þengill dásamar verk Kolbrúnar, segir gripina bæði fallega og góða til brúks.
- Á sýningunni verða einnig nokkrar stólar úr smiðju Valda – kollar með hreindýraskinni. Hann vill raunar ekki gera mikið úr sínum þætti en getur þó ekki neitað því að kollarnir verði á staðnum.

- Síðast en ekki síst nefnir Þengill að á sýningunni verði skáhillur hannaðar af Gunnari heitnum Magnússyni húsgagnahönnuði og innanhússarkitekt frá Ólafsfirði, hinum sama og hannaði skákborðið sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í heimsmeistaraeinvíginu í skák í Laugardalshöllinni í Reykjavík árið 1972, „Einvígi aldarinnar“ eins og það var kallað.
Var ekki sáttur en er það núna
Valdimar tekur undir orð blaðamanns að listsýningin sé óvenjuleg en falleg leið til að kveðja húsið. Frábær hugmynd, segir gesturinn, en hvernig kviknaði hún?
„Hann átti hugmyndina,“ segir Þengill og bendir á föður sinn en Valdi hlær og neitar því.
„Hann og Sunna vilja koma því á mig; að mér hafi dottið þetta í hug, en við skulum þá að minnsta kosti klína því á hana líka,“ segir Þengill á léttu nótunum og á við eiginkonu sína, leikkonuna Sunnu Borg. Öll liggja þau því undir grun!
Margir muna án efa eftir sýningum Þengils á „litaprufunum“ á árum áður. Eitt sinn sýndi hann í Sjallanum og „húsið var sneisafullt allan daginn“ rifjar Þengill upp; þúsund manns mættu. „Það eru 15 ár frá síðustu sýningu þannig að ef ég held mig við það sýni ég næst níræður!“ segir hann og hlær.
Báðir kveðja þeir húsið sáttir. „Það var gott að vinna hérna og húsið er líka gott sem sýningarsalur. Fyrst þegar við ræddum um að halda sýningu hér áður en við færum leist mér ekki á það, en nú er orðinn mjög sáttur.“
- Sjón verður sögu ríkari við Furuvelli frá miðvikudeginum 1. apríl til mánudags 6. apríl, annars í páskum. Sýningin í Ýmishúsinu verður opin þá daga frá kl. 14:00 til 19:00.