Fara í efni
Menning

Krummafótur, tónleikar, sýningar og smiðjur

Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.  Eitthvað er um að vera alla daga vikunnar og listinn verður uppfærður jafnóðum og fréttist af nýjum viðburðum.

Listasumar á Akureyri stendur nú sem hæst, með alls konar viðburðum um allan bæ fyrir fólk á öllum aldri. Ókeypis er á alla viðburði Listasumars. Alla viðburði Listasumars má finna á þessari síðu en hér að neðan er stiklað á stóru, inn á milli annarra viðburða í bænum.

 

Tónleikar

  • Miðvikudjass á Majó – Majó, Hofi, miðvikudaginn 8. júlí kl. 16-17. THE tríó flytur létta og sumarlega djasstóna. Tríóið skipa þau Erla Mist Magnúsdóttir söngkona, Hallgrímur Jónas Ómarsson á gítar og Tómas Leó Halldórsson á bassa.
  • Pétur Ben – Græna hattinum, fimmtudag 9. júlí kl. 21. „Pétur er þekktur fyrir ófyrirsjáanlegar og fjölbreyttar tónleikaupplifanir þar sem hann fléttar saman eigin ólíkum lagasmíðum við óvæntar og skemmtilegar ábreiður,“ segir í kynningu.

Pétur Ben er á tónleikaferð um landið og verður á Græna hattinum á fimmtudagskvöld.

  • Strákurinn fákurinn – Leyni, föstudaginn 11. júlí kl. 21. Strákurinn fákurinn fagnar útgáfu plötunnar „Drengurinn fengurinn".
  • JóiPé x Króli og hljómsveit – Græna hattinum, föstudag 10. júlí kl. 21. „JóiPé og Króli eru á Græna hattinum með stórdansleik ársins. Og þau frábærustu skemmtiatriði sem þið getið ímyndað ykkur,“ segir í kynningu.
  • Amor Vincit Omnia – Leyni, föstudag 10. júlí kl. 21. „Tvíeykið Amor Vincit Omnia steig fyrst á sjónarsviðið árið 2023 og hefur síðan alltaf komið áheyrendum á óvart með skringipoppi sínu,“ segir í kynningu.
  • Mugison – Lystigarðinum, laugardag 11. júlí kl. 15. „Elska að labba þarna um, þarna fæddist hluti af besta laginu mínu sem heitir Stingum af - þykir endalaust vænt um þennan garð,“ segir Mugison.
  • Sumartónleikar - Björn Steinar – Akureyrarkirkju, sunnudaginn 12. júlí kl. 17. Björn Steinar Sólbergsson, upphafsmaður Sumartónleika í Akureyrarkirkju, leikur nú á hátíðinni í tilefni 40 ára afmælis hennar. Á efnisskrá eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Louis Vierne, Pál Ísólfsson, Daníel Þorsteinsson og Báru Grímsdóttur, auk þess sem Björn Steinar frumflytur nýtt Afmælisfanfar eftir Þorvald Örn Davíðsson.

Björn Steinar Sólbergsson leikur orgelverk á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju á sunnudaginn.

Viðburðir

    • Náttúruval - kynning á nýju spili – Amtsbókasafninu, þriðjudaginn 7. júlí kl. 14-16.. „Komdu og spilaðu við okkur Náttúruval, vísindalegt dýraspil fyrir börn á öllum aldri,“ segir í kynningu. Hægt verður að kaupa spilið á staðnum en auk þess fær bókasafnið eintak að gjöf sem hægt er að fá lánað.
    • Hríseyjarhátíð –  föstudaginn 10. júlí og laugardaginn 11. júlí. Árleg hátíð í Hrísey með fjölmörgum viðburðum. Boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá sem felst m.a. í garðakaffi, óvissuferðum um eyjuna, kvöldvöku, markaði, kaffisölu, ratleik, kirkjutröppuhlaupi, varðeld og söng.
    • Krummafótur – Grasrótarsviðslistahátíð, haldin í fyrsta sinn. Hátíðin leggur sérstaka áherslu á að gefa ungu og upprennandi sviðslistafólki tækifæri og vettvang til að sýna verk sín. Fjölbreyttir viðburðir dagana 10.-12. júlí. Frítt inn á alla viðburði.
    • Hreyfimyndasmiðja – Kaktus, sunnudaginn 12. júlí kl. 12-14. Smiðjan byggir á skemmtilegri animation-aðferð sem kallast metamorphosis. Í þessu ferli er hægt að sjá töfra teiknimyndagerðar á einfaldan og skemmtilegan máta.

 

Náttúruval er spil fyrir börn á öllum aldri sem kynnt verður á Amtsbókasafninu á þriðjudaginn kl. 14-16.

 

Listsýningar

 

Toggi / Þorgeir ÓIason opnar sýningu á lágmyndum úr kopar í Deiglunni. Sýnining stendur til. 16. júlí.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.