Mannlíf
Krossnefur og frændur hans í barrskógunum
04.02.2026 kl. 22:00
Eins og kunnugt er þekja skógar aðeins lítinn hluta Íslands og af þeim skógum eru barrskógar aðeins örlítið brot. Samt sem áður hafa þeir haft ýmis jákvæð áhrif á náttúruna. Helst ber þar að nefna að þeir hafa aukið líffjölbreytileikann töluvert. Hann birtist meðal annars í nýjum fuglategundum sem hafa sest hér að í kjölfar þess að barrtré fóru að vaxa á Íslandi.
Þannig hefst nýr pistill Sigurðar Arnarsonar í röðinni Tré vikunnar. Hann segir: „Guðmundur Páll Ólafsson (2005) spáði því í bókinni Fuglar í náttúru Íslands að í framtíðinni yrði helsti vaxtarbroddur nýrra varpfugla á Íslandi í hópi skógarfugla og nefndi sérstaklega barrtré í því sambandi. Svo virðist sem Guðmundur Páll hafi haft rétt fyrir sér. Þá hafði glókollur verið hér í um áratug og nú hefur hann komið sér vel fyrir á landinu. Líta má á hann sem skilgetið afkvæmi greniskóga.“
Hin síðari ár hefur silkitoppa sést hér æ oftar en hana má einnig finna í bland- eða barrskógum, segir Sigurður. „Sama má segja um skógarsnípu sem nú má líklega telja til varanlegra varpfugla í barrskógum landsins þótt fáliðuð sé og svo auðvitað krossnef, Loxia curvirostra L. Pistill vikunnar fjallar um hann og náfrændur hans. Allir þessir fuglar kjósa sér helst barrskóga sem heimkynni og auðguðu ekki fánu landsins nema fyrir tilstilli barrtrjáa.“
Meira hér: Krossnefur og frændur hans