Fara í efni
Minningargreinar

Kristján Snorrason

Jæja þá er okkur farið að fækka bakarabræðrunum í Kristjánsbakaríi, sonum Snorra bakara og Helgu Leós. Stjáni var elstur okkar bræðra.

Stjáni, eða Gakki eins og hann var kallaður í uppvexti okkar, kvaddi þennan heim þann 30. maí sl., á afmælisdaginn hans Billa bróður, eftir hetjulega baráttu við krabbamein.

Stjáni var skemmtilegur karl, fannst gaman að segja sögur og heyra góðar sögur.

Stjáni var duglegur, handlaginn, með bíladellu, hafði mikinn áhuga á hestum og átti hunda. Hann var ekki pjattrófa.

Stjáni var sérstakur í skapi, gat verið mjög snöggur upp en fljótari niður ef svo bar við. Þá fór hann með Kristjánsbænir sem allar voru ætlaðar þeim í neðra og ég veit að séra Svavar mun ekki vitna í þann orðaflaum þegar hann jarðsyngur hann.

Eins og ég sagði, var Stjáni laghentur og lúsiðinn, alltaf að gera eitthvað. Sem dæmi má nefna að þegar hann var polli fékk hann hálft búrið hjá mömmu undir verkstæði þar sem hann smíðaði allt mögulegt eins og til dæmis togara úr tveim gallonbrúsum undan olíu. Ég man hvað mér fannst flott þegar hann gerði togvindurnar úr stórum tvinnakeflum.

Mamma ýtti undir þetta hjá honum, bæði með því að láta hann hafa hálft búrið og svo keypti hún líka verkfæri í Gránu. Vinkonum mömmu þótti vel í lagt þegar mamma keypti Stanley-hefil handa pollanum.

Stjáni fór að fúna snemma og búið var að skipta um marga liði í honum. Ég sagði Stjána að ég teldi hann nú bara vera hálfbróður minn þar sem þetta nýja dót væri ekki af Skútustaðættinni.

Við Stjáni vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að vera í sveit á Núpum í Aðaldal mörg sumur, hann fyrst og svo ég líka. Þar vorum við eins og einir af strákunum þeirra á Núpum.

Stjáni var í miklu sambandi við heimilisfólkið á Núpum allt til síðasta dags.

Lísa og Stjáni byggðu sér sumarhús í landi Núpa sem fékk nafnið Kristjánsborgarhöll. Þar eru þau búin að eiga mörg ánægjuleg sumur.

Stjáni var mikill veiðimaður og fór öll vor í veiði í Núpa. Hans síðasti veiðitúr var þremur vikum áður en hann kvaddi. Hann gerði góða veiði þá en var alveg búinn á því þegar hann kom heim.

Stjáni var mikill bílaáhugamaður eins og ég nefndi og hann átti marga flotta bíla í gegnum tíðina. Einn af hans uppáhalds var Ford pickup sem Billi bróðir keypti af honum núna um daginn. Kaupunum fylgdi eitt skilyrði; það að við myndum keyra Stjána síðasta spölinn í kirkjugarðinn á honum.

Ég kveð Stjána stóra bróður með söknuði í hjarta. Ég veit að hann trúði, ekki síður en pabbi, að þeir muni hittast aftur á öðrum stað.

Hvíldu í friði, Gakki bróðir!

Birgir Snorrason

Bernharð Haraldsson

Aðalheiður Steingrímsdóttir og Þröstur Ásmundsson skrifa
13. júní 2025 | kl. 20:00

Bernharð Haraldsson

Gunnar Maríu Jónsson og Svanhildur Daníelsdóttir skrifa
13. júní 2025 | kl. 11:00

Bernharð Haraldsson – lífshlaupið

13. júní 2025 | kl. 11:00

Bernharð Haraldsson

Hjalti Jón Sveinsson skrifar
13. júní 2025 | kl. 06:00

Ólafur Gísli Hilmarsson

Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar
30. apríl 2025 | kl. 12:00

Ólafur Gísli Hilmarsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
30. apríl 2025 | kl. 12:00