Fara í efni
Menning

Kórverk um baráttuna við náttúruöflin gefið út

Sönghópurinn Spectrum flytur kórverkið „At least there is not a war“ eftir Helgu Margréti Marzellíusardóttur sem nýlega var gefið út.

Kórverkið „At least there is not a war“ eftir Helgu Margréti Marzellíusardóttur, sem kom nýlega út á streymisveitum í flutningi Sönghópsins Spectrum, er innblásið af glímu Íslendinga við náttúruöflin, en ólíkir atburðir urðu kveikjan að einstökum köflum þess. Einn kaflinn, Gravity - North, „varð til úr tilfinningum sem kviknuðu við lestur frétta af banaslysi í Núpá í Sölvadal í Eyjafirði í árslok 2019, þar sem ungur maður úr Vestmannaeyjum fórst í krapaflóði,“ segir í tilkynningu frá kórnum.

  • Helga Margrét er frá Ísafirði, alin upp við að hafa varann á sér vegna snjóflóðahættu á vetrum. Tenging hennar við annan þátt verksins, Lullaby into another dimension - West, er persónuleg og sterk. Helga missti bestu vinkonu sína í snjóflóðinu í Súðavík 1996. Vögguvísan er sungin á milli tveggja heima, í von um að sambandið rofni ekki.
  • Fyrsti hluti verksins, Breathe a Bit - East, varð til skömmu eftir að miklar hamfarir urðu á Seyðisfirði í desember 2020 og aurskriður ollu miklum skemmdum í bænum. „Innra með Ísfirðingnum vöknuðu gamalkunnugar tilfinningar og samkennd með Seyðfirðingum, sem glímdu við ógnarkrafta náttúrunnar,“ segir í tilkynningunni.
  • Kveikjan að þriðja þættinum, Be safe - South, voru hinir sögulegu atburðir í Grindavík í nóvember 2023, þegar rýma varð bæinn á svipstundu vegna jarðhræringa og yfirvofandi eldgoss.
  • Fjórði hlutinn, Gravity - North, varð sem fyrr segir til úr tilfinningum sem kviknuðu við lestur frétta af banaslysi í Núpá í Sölvadal í Eyjafirði í árslok 2019, þar sem ungur maður úr Vestmannaeyjum fórst í krapaflóði. 

Helga Margrét Marzellíusardótti, höfundur kórverksins „At least there is not a war“ sem kom nýlega út á streymisveitum í flutningi Sönghópsins Spectrum.

Vanmáttur gagnvart náttúrunni

„Hafi maður á einum tímapunkti óttast náttúruna og fundið fyrir vanmætti gagnvart henni er það tilfinning sem mun að öllum líkindum skjóta upp kollinum aftur og aftur,“ segir Helga Margrét. Í lokakafla verksins, I'll just ask God, er niðurstaða tónskáldsins sú að stundum sé ekki annað að gera en að leggja örlögin í hendur almættisins.

Sönghópurinn Spectrum, sem Ingveldur Ýr stýrir, „hefur getið sér orð sem óhefðbundinn kór, sem kemur á óvart og nær að víkka út skilgreininguna á því hvað kór er og getur. Í verki Helgu Margrétar reynir á söngvarana, sem vefja m.a. veðurhljóð og sírenuvæl inn í raddsetninguna,“ segir í áðurnefndri tilkynningu.

„At least there is not a war“ var tekið upp á síðasta ári í Fella- og Hólakirkju undir stjórn Ragnheiðar Jónsdóttur, en hún hlaut í fyrra Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir upptökustjórn. Verkið kemur út sem stuttskífa á streymisveitum. Útlit útgáfunnar hannaði Monika Janina Kristjánsdóttir.

„Umslag“ stuttskífunnar sem komin er út á streymisveitum.