Fara í efni
Fréttir

Konum fjölgar um 30% í FKA Norðurlandi

FKA norðurlandsdeildin var formlega stofnað í október 2014. Hér er stjórn FKA Norðurland f.v. Jóhanna Hildur Ágústsdóttir, Aðalbjörg Snorradóttir, Ásdís Sigurðardóttir og Sif Jónsdóttir Mynd: Axel Darri

Konum í FKA Norðurlandi, sem er deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu, hefur fjölgað um rúm 30% á einu starfsári. Í nóvember voru félagskonur 39 en eru nú orðnar 57.

„Þetta er alveg orðin rúm 30% aukning,“ segir Jóhanna Hildur Ágústsdóttir, stjórnarkona í deildinni sem hefur verið starfandi í 6 ár með hléum.  Að hennar sögn má rekja aukninguna til markvissari vinnu innan félagsins, aukins sýnileika og sterkari tengslamyndunar.

„Við konur erum oft ótrúlega duglegar að setja aðra í fyrsta sæti og okkur sjálfar neðar. Stjórn félagsins hefur hins vegar verið dugleg að hvetja konur til þess að skrá sig í félagið og sér tíma til að mæta á viðburði hjá okkur,“ segir Jóhanna sem segir að þessi hvatning til þátttöku hafi verið að skila sér. „Við erum að sjá fleiri ungar konur koma inn, en líka konur í eigin rekstri eða í blöndu af rekstri og dagvinnu. Því   fjölbreyttari sem hópurinn er, því fjölbreyttari starfsemi getum við boðið upp á,“ segir Jóhanna og bætir við að félagið sé opið öllum konum í atvinnulífinu, óháð aldri eða stöðu, en það býður upp á tengslanet um 1.500 kvenna á landsvísu.

Fyrir jólin stóð félagið fyrir jólarölti á milli fyrirtækja í eigu kvenna á Akureyri. Hér eru félagskonur í heimsókn hjá Katrínu Káradóttur í versluninni Kistu. 

Tengslanet kvenna

Jóhanna lýsir FKA sem mikilvægu hreyfiafli fyrir konur í atvinnulífinu. „Þetta er tengslanet og vettvangur til að styrkja hver aðra og hafa áhrif. Fyrir konur hér fyrir norðan er ómetanlegt að hafa aðgang að svona stóru tengslaneti um allt land.“

Sjálf gekk Jóhanna í FKA árið 2019, skömmu eftir að hún flutti norður. Hún segir að markmiðið hafi fyrst og fremst verið að kynnast konum í atvinnulífinu og skapa sér tækifæri á nýjum stað. Hún starfar í dag í veitingageiranum og kemur að rekstri veitingastaðanna Múlabergs og Teríunnar. Hún segist fljótlega hafa farið að taka þátt í stjórnarstarfi innan félagsins og segir það hafa haft mikil áhrif á sig. „Þar finn ég að ég get haft áhrif og nýtt krafta sem ég var kannski ekki endilega að nýta annars staðar.“

„Þegar kraftmiklar konur koma saman verður til ákveðin orka sem gefur innblástur til að gera meira.“ segir Jóhanna Hildur Ágústsdóttir, stjórnarkona í FKA Norðurlandi. 

Hittast einu sinni í mánuði

Aðspurð út í það hvað deild FKA á Norðurlandi geri nákvæmlega segir Jóhanna að deildin standi reglulega fyrir viðburðum þar sem áhersla er lögð á tengslamyndun, fræðslu og stuðning við konur í atvinnulífinu. Fundir og viðburðir eru yfirleitt haldnir mánaðarlega og geta verið allt frá
heimsóknum í fyrirtæki og fyrirlestrum yfir í óformlega hittinga þar sem konur kynnast og deila reynslu. Fyrir jólin var t.d. boðið upp á jólarölt þar sem nokkur fyrirtæki kvenna í bænum voru heimsótt. Þá var haldin nýliðakynning í febrúar sem vakti mikinn áhuga og skilaði sér í frekari fjölgun félagskvenna. Aukningin hefur einnig leitt til fjölbreyttari hóps félagskvenna, bæði hvað varðar aldur og bakgrunn. „Við höfum líka lagt meiri áherslu á að nýta bæði fjölmiðla og okkar eigin miðla, eins og Facebook og Instagram, til að varpa ljósi á starfsemina og þær konur sem taka þátt,“ segir Jóhanna og hvetur áhugasamar konur til að kíkja á þeirra miðla.

Svana Símonardóttir, eigandi Mynju á Akureyri, verður með erindi á Sýnileikadeginum í Reykjavík.

Norðlenskar konur á Sýnileikadegi FKA

Félagskonur á Norðurlandi láta einnig til sín taka á landsvísu. Í dag, 19. mars, er árlegur Sýnileikadagur FKA í Reykjavík og fer tíu manna hópur að norðan til að taka þátt. Ein félagskona af Norðurlandi verður þar með fyrirlestur, Svana Símonardóttir, eigandi Mynju, auk þess sem Dagný Reykjalín, einnig félagskona á Norðurlandi, hefur setið í Sýnileikadagsnefnd ásamt fleirum sem taka þátt í skipulagi og nefndarstörfum tengdum viðburðinum. „Það er ótrúlega gaman að sjá hvað við fáum pláss á landsvísu og getum tekið þátt hvar sem við erum á landinu,“ segir Jóhanna.

Þrátt fyrir jákvæða þróun segir hún þó að helsta áskorunin sé tími. „Konur eru með ótrúlega mörg verkefni, vinnu, heimili og annað. Við erum kannski ekki fleiri í félaginu einfaldlega af því að við konur gefum okkur sjálfum ekki alltaf pláss.“ Hún telur þó að þróunin sé skýr og að
félagið muni halda áfram að vaxa. „Við erum hvergi hættar og þegar kraftmiklar konur koma saman verður til ákveðin orka sem gefur innblástur til að gera meira.“


Hópmynd af hópnum sem tók þátt í jólaröltinu. Myndin tekin fyrir utan verslunina Kistu sem er í eigu félagskonunnar Katrínar Káradóttur.