Komu færandi hendi á endurhæfingardeild

Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri komu enn einu sinni færandi hendi á stofnunina á dögunum, að þessu sinni á endurhæfingardeildina í Kristnesi í Eyjafjarðarsveit.
„Markmið Hollvina SAk er að styðja og styrkja starfsemi sjúkrahússins, meðal annars með því að vekja athygli á mikilvægi hennar og standa fyrir fjáröflun í samráði við framkvæmdastjórn. Með þessu framlagi sýna Hollvinir enn á ný hve mikils virði þeirra framlag er,“ segir í tilkynningu á vef SAk.
Að þessu sinni afhentu Hollvinir, segir í tilkynningunni:
-
Þrjá hægindastóla sem nýtast við vax- og hitameðferð í iðjuþjálfun, þar sem slökun og mýking eru mikilvægir þættir í meðferð við t.d. gigtarverkjum og stirðleika.
-
Tvær spjaldtölvur af flottustu gerð, sem verða notaðar við þjálfun og fræðslu í sjúkra- og iðjuþjálfun.
-
Ýmiss konar minni þjálfunarbúnað sem gefur kost á að auka fjölbreytni í þjálfun.
„Við hjá SAk erum afar þakklát fyrir þennan mikilvæga stuðning sem nýtist beint í þágu skjólstæðinga okkar og eflir faglega þjónustu á endurhæfingardeildinni,“ segir á vef sjúkrahússins.