Fara í efni
Menning

Keppendur frá DSA brilleruðu í Dublin

Nemendur frá DSA Listdansskóla Akureyrar náðu framúrskarandi árangri á Dance World Cup 2026, sem fram fór í Dublin á Írlandi dagana 8. til 18. júlí. Af tólf atriðum sem skólinn sendi til keppni komust tíu í hóp tíu efstu í sínum flokkum og öll hópatriði skólans enduðu meðal tíu bestu.

Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá DSA er Dance World Cup eitt stærsta og virtasta alþjóðlega dansmót heims, þar sem þúsundir ungra dansara frá tugum landa taka þátt. Í flestum keppnisflokkum keppa 20 til 35 atriði til úrslita og því teljist árangur DSA afar athyglisverður.

 

Hársbreidd frá bronsverðlaunum

Besti árangur skólans náðist í flokknum Children Small Group Song and Dance, þar sem hópurinn hafnaði í fjórða sæti með 92,2 stig. Aðeins 0,1 stig munaði á DSA og bronsverðlaunasætinu. DSA hreppti síðan í sjötta sæti í flokkunum Children Small Group Contemporary og Junior Large Group Commercial. Önnur hópatriði skólans enduðu í sjöunda, áttunda, níunda og tíunda sæti og endurspegla þannig breidd og styrk í starfi skólans.

 

Einn merkasti áfanginn á mótinu náðist í flokki þjóðdansa (National and Folklore). Þar átti Ísland í fyrsta sinn fulltrúa í sögu Dance World Cup og var það DSA sem keppti fyrir hönd landsins. Atriðið hafnaði í níunda sæti með 86,5 stig og markar þátttakan tímamót fyrir íslenskan þjóðdans á þessu alþjóðlega móti.

DSA tók m.a. þátt í flokki þjóðdansa fyrir Íslands hönd og er það í fyrsta sinn sem Ísland á fulltrúa í þeim flokki.

Mikil undirbúningsvinna að baki árangrinum

Keppnislið DSA skipuðu 33 nemendur á aldrinum sjö til sautján ára sem hafa undirbúið sig af miklum metnaði undanfarna mánuði.

Katrín Mist Haraldsdóttir, eigandi DSA, segir árangurinn vera afrakstur mikillar vinnu nemenda, kennara og fjölskyldna. „Við erum ótrúlega stolt af þessum árangri. Nemendurnir sýndu einstaka vinnusemi, samheldni og fagmennsku við allan undirbúning og það sama má segja um fjölskyldurnar sem fylgdu keppendum á mótið og lögðu mikla vinnu í allan undirbúning líkt og við saum á búningum, fjáröflun og fleira svo ekki sé talað um að vera öflug í að hvetja keppendur áfram í salnum. Við erum gríðarlega stolt af okkar fólki og íslenska liðinu öllu og erum þegar farin að huga að næsta Dance World Cup,“ segir Katrín Mist í fréttatilkynningunni.

 

Að baki keppnisliðsins standa Katrín Mist og Eydís Gauja Eiríksdóttir, skólastjóri DSA. Þær sömdu jafnframt öll tólf keppnisatriðin sem skólinn flutti á mótinu. Í tilkynningu skólans segir að árangurinn í Dublin sé enn einn áfanginn í uppbyggingu DSA Listdansskóla Akureyrar og staðfesti að nemendur skólans geti náð langt á alþjóðlegum vettvangi með markvissri þjálfun og metnaðarfullu starfi.