Fara í efni
Fréttir

KEA stærsti hluthafi í Norlandair með 43%

Mynd: Skapti Hallgrímsson

KEA er orðinn stærsti hluthafi í flugfélaginu Norlandair – á nú 43% eftir að hafa bætt við sig 21%. Air Greenland hefur einnig aukið við hlut sinn í félaginu og er nú næst stærsti eigandi.

Seljendur eru Friðrik Adolfsson, fjárfestingafélagið Kaldbakur og Mýflug. Friðrik lét af störfum sem framkvæmdastjóri Norlandair vegna aldurs um nýliðin áramót og við starfi hans hefur tekið Arnar Friðriksson.

Norlandair er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri og sinnir sérhæfðu leiguflugi á Grænlandi auk þess að fljúga innanlands í áætlunarflugi á minni flugvelli. Um síðustu áramót tók Norlandair við sjúkraflugi innanlands til næstu 3ja ára og hefur flugfloti félagsins verið stækkaður þess vegna. Nú er félagið með 3 Twin-Otter og 3 King Air flugvélar í rekstri og áætluð velta þessa árs eru tæpir 3 milljarðar króna. Hjá félaginu eru um 35 stöðugildi.

„KEA hefur verið hluthafi í Norlandair allt frá stofnun þess árið 2008. Það eru mörg spennandi verkefni sem félagið stendur frammi fyrir og við viljum gera gott fyrirtæki betra í samstarfi við aðra hluthafa og starfsmenn þess. Fjárhagur félagsins er traustur og afkoma hefur lengi verið með ágætum. Kaup þessi eru í samræmi við áherslur okkar um að fækka verkefnum en um leið að stækka þau verkefni sem við komum að,“ segir Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA í tilkynningu.