Fara í efni
Fréttir

KEA: 800 þúsund til Velferðarsjóðs

KEA styrkir jólaaðstoð Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðisins eins og undanfarin ár. KEA hefur verið styrktaraðili sjóðsins frá upphafi, að því er segir í tilkynningu frá félaginu, og að þessi sinni er styrkurinn 800.000 krónur.

Velferðarsjóðurinn er samstarfsverkefni Rauða krossins, Hjálpræðishersins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar og veitir heimilum og fjölskyldum aðstoð fyrir jólin í formi gjafakorta í matvöruverslunum. Starfssvæði sjóðins er Eyjafjörður, frá Siglufirði til Grenivíkur. 

Á myndinni eru Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA, ásamt stjórnarkonum Velferðarsjóðsins, formanninum Kristínu Björk Gunnarsdóttur, til vinstri, og Kristbjörgu Álfhildar Sigurðardóttur.