Fara í efni
Íþróttir

KA þarf sigur í kvöld – Úrslitakeppni í blaki

Viðburðarík vika fram undan hjá nokkrum Akureyrarliðum. Karlalið KA í handbolta mætir Val í þriðja og mögulega fjórða og fimmta leik undanúrslita Olísdeildarinnar. Bæði blaklið KA hefja úrslitaeinvígi Unbroken-deildanna í vikunni, kvennaliðið gegn HK og karlaliðið gegn Þrótti. Þá er 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í dagskrá undir lok vikunnar.

MÁNUDAGUR 13. APRÍL - handbolti

Þriðji leikur KA gegn Val í úrslitakeppni Íslandsmótsins í handbolta karla er á dagskrá í Valsheimilinu í kvöld. 

  • Olísdeild karla í handbolta
    Undanúrslit, leikur 3
    N1 höllin að Hlíðarenda kl. 19:00
    Valur - KA
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Valur vann fyrsta leikinn á sínum heimavelli með 18 marka mun, 39-21. Annar leikurinn sem fram fór á Akureyri var mun jafnari, en Valsmenn höfðu aftur sigur, 33-30 í þetta skiptið. 

Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Það er því að duga eða drepast hjá KA í kvöld, þeir verða að vinna til að halda einvíginu áfram, en ef Valur vinnur lýkur keppnistímabilinu hjá KA og Valsmenn fara í úrslit gegn FH eða Haukum.

ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL - blak

Kvennalið KA í blaki vann Völsung í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins í liðinni viku og mætir HK í úrslitaeinvíginu. HK vann deildarmeistaratitilinn og hefst einvígið því í Kópavoginum. 

KA vann alla fjóra titlana í blaki kvenna á síðustu leiktíð, meistarar meistaranna, bikarmeistarar, deildarmeistarar og Íslandsmeistarar. Tímabilið hófst síðastliðið haust með því að KA vann titilinn meistarar meistaranna. Síðan þá eru tveir bikarar farnir í Kópavoginn, HK varð bæði bikar- og deildarmeistari á dögunum.

  • Íslandsmótið, Unbroken-deild kvenna í blaki
    Úrslitaeinvígi, leikur 1
    Digranes í Kópavogi kl. 18
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

HK vann allar viðureignirnar við KA í deildinni í vetur, 3-0 og 3-1 á Akureyri í desember, og síðan 3-2 og 3-1 í lokaleikjum deildarinnar í byrjun mars. Þessi lið mættust einnig í úrslitum bikarkeppninnar, Kjörísbikarsins. HK vann þá viðureign 3-1.

Það verður því eflaust við ramman reip að draga hjá KA-liðinu enda er HK með sterkt lið og margar landsliðskonur í sínum röðum. En þegar komið er alla leið í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn getur allt gerst.

MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL - blak

Úrslitaeinvígi KA og Þróttar R. um Íslandsmeistaratitil karla í blaki hefst í kvöld. Það verða liðin sem enduðu í 2. og 4. sæti Unbroken-deildar karla í blaki sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn. KA sló Aftureldingu út í undanúrslitunum og Þróttur sló út deildarmeistara Hamars. Það þýðir að KA er komið með oddaleiksréttinn og byrjar á heimavelli í úrslitaeinvíginu.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Úrslitaeinvígi, leikur 1
    KA-heimilið kl. 18:30
    KA - Þróttur R.
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Þróttur og KA mættust tvisvar í deildarkeppninni í Reykjavík í nóvember. Þróttur vann fyrri viðureignina 3-1, en KA þá seinni 3-2. KA vann 3-1 á sínum heimavelli í byrjun janúar.

FIMMTUDAGUR 16. APRÍL - mögulega handbolti

Ef KA vinnur Val á útivelli í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handbolta verður fjórði leikur einvígisins á dagskrá í KA-heimilinu fimmtudaginn 16. apríl. Ef kemur til þess að oddaleik þurfi til að knýja fram úrslit verður hann sunnudaginn 19. apríl.

FÖSTUDAGUR 17. APRÍL - fótbolti

KA byrjar Bestu deild karla í knattspyrnu á tveimur heimaleikjum. Á föstudag tekur KA á móti Íslandsmeisturum Víkings í 2. umferð deildarinnar.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Greifavöllurinn á Akureyri kl. 17:30
    KA - Víkingur

KA fékk Stjörnuna í heimsókn í fyrstu umferðinni og þurfti að sætta sig við 2-3 tap á heimavelli. Víkingur gerði 1-1 jafntefli við Breiðablik í opnunarleik deildarinnar síðastliðið föstudagskvöld.

- - -

Þór leikur annan leik sinn í Bestu deild karla í knattspyrnu á föstudag, og jafnframt annan útileik sinn í upphafi móts. Þórsarar fara í Vesturbæ Reykjavíkur og mæta þar KR-ingum á Meistaravöllum. 

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 2. umferð
    Meistaravellir í Reykjavík kl. 17:30
    KR - Þór

Bæði lið hófu keppni með sigri í fyrstu umferðinni. Þór vann Val á Hlíðarenda, 2-1, og KR vann 3-2 sigur á Keflvíkingum á sínum heimavelli, Meistaravöllum.

LAUGARDAGUR 18. APRÍL - blak

Annar leikur KA og HK í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í blaki fer fram á Akureyri á laugardag.

  • Íslandsmótið, Unbroken-deild kvenna í blaki
    Úrslitaeinvígi, leikur 2
    KA-heimilið kl. 15:30
    KA - HK
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

SUNNUDAGUR 19. APRÍL - blak og mögulega handbolti

Annar leikur KA og Þróttar R. í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í blaki er á dagskrá á sunnudag, í Laugardalshöllinni.

  • Íslandsmótið, Unbroken-deild karla í blaki
    úrslitaeinvígi, leikur 1
    Laugardalshöll kl. 14
    Þróttur R. - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

- - -

Ef KA vinnur Val á útivelli í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olísdeidlar karla í handbolta og á heimavelli á fimmtudag verður oddaleikur einvígisins á dagskrá að Hlíðarenda á sunnudag.