Íþróttir
														
KA heima gegn Fram, Þór/KA fer á Selfoss
											
									
		30.05.2022 kl. 16:48
		
							
				
			
			
		
											
											Steinþór Már Auðunsson, markvörður KA, og Sandra María Jessen, framherji Þórs/KA, hafa bæði leikið vel undanfarið. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson
									KA-menn fá Framara í heimsókn í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, og Þór/KA mætir liði Selfoss á útivelli í átta liða úrslitum. Dregið var í dag.
Mjólkurbikar kvenna - átta liða úrslit
- Valur - KR
 - Selfoss - Þór/KA
 - ÍBV - Stjarnan
 - Breiðablik - Þróttur R.
 
Mjólkurbikar karla - 16 liða úrslit
- ÍA - Breiðablik
 - FH - ÍR
 - KA - Fram
 - Selfoss - Víkingur R.
 - Ægir - Fylkir
 - HK - Dalvík/Reynir
 - Njarðvík - KR
 - Kórdrengir - Afturelding
 
Leikir í kvennakeppninni fara fram 10. og 11. júní en leikir karlaliðanna hafa verið settir á 26. og 27. júní.