KA enn í basli eftir fimmta tapið í röð
Stjarnan lagði KA að velli 3:1 í viðureign liðanna í efstu deild karla í knattspyrnu í Garðabæ í gær. KA-menn sitja því sem fastast í 10. sæti deildarinnar eftir fimm tapleiki í röð og bilið upp í efri hluta deildarinnar heldur áfram að breikka.
Þó að KA hafi vissulega verið í basli undanfarið má það sama segja um Stjörnuna. Svo fór að liðið skipti um þjálfara í von um að snúa genginu við og það tókst loks í gær í þriðja leik eftir þjálfaraskiptin.
Eins og oft áður í leikjum KA í sumar voru andstæðingarnir sprækari framan af leik, án þess þó að ná einhverjum yfirburðum. Og þótt Stjörnumenn hafi verið duglegir að komast upp kantana sköpuðu fyrirgjafir þeirra sjaldnast einhverja hættu. Öðru máli gegndi þegar þeir komust inn í teig og Stjarnan náði forystunni í leiknum á 18. mínútu eftir eitt slíkt upphlaup. Birnir Snær Ingason, sem lék einmitt með KA síðari hluta sumars í fyrra, var kominn upp að endamörkum vinstra megin og skeiðaði framhjá varnarmanni inn í vítateig. Hann reyndi skot úr þröngu færi sem Steinþór Már Auðunsson í marki KA varði út í markteiginn, einmitt þar sem Emil Atlason stóð grunsamlega aleinn og afgreiddi knöttinn í netið.

Hallgrímur Mar Steingrímsson gerði eina mark KA í Garðabænum í gær. Mynd: Ármann Hinrik
Stjarnan réði ferðinni í fyrri hálfleik
Stjörnumenn juku forskotið tæpum þremur mínútum síðar eftir vel útfærða skyndisókn. Örvar Eggertsson fékk langa sendingu upp hægri kantinn aftur fyrir varnarmann og sendi fasta og viðstöðulausa sendingu fyrir markið og þar lagði Benedikt V. Warén boltann snyrtilega í markið af markteig. Áfram héldu Stjörnumenn að ráða ferðinni og virkuðu fljótari, liprari og ákveðnari, því KA-mönnum gekk bölvanlega að stilla saman strengi og leika boltanum á milli samherja. Virkuðu hikandi og andlausir. Fyrri hálfleik lauk þó án þess að til fleiri stórtíðinda drægi.
Í síðari hálfleiknum voru KA-menn mun betri en í þeim fyrri, náðu oftar að halda boltanum innan liðsins, sýndu meiri baráttu og áræðni. Hallgrímur Mar Steingrímsson minnkaði muninn á 51. mínútu með góðu skoti úr vítateignum, eftir að Kári Gautason hafði unnið boltann af harðfylgi á hægri kantinum og sent knöttinn inn í vítateig. Þar náði Oliver Heiðarsson að breyta stefnu hans örlítið, sem dugði til að boltinn barst til Hallgríms. Eftir þetta áttu KA-menn ágæta spretti áfram en Stjörnumenn fengu þó hættulegri færi. Steinþór Már þurfti að taka á honum stóra sínum í þrígang með stuttu millibili um miðjan hálfleikinn. KA hefði þó getað jafnað leikinn á 69. mínútur þegar Árni Snær Ólafsson í Stjörnumarkinu átti misheppnaða sendingu út úr eigin vítateig, beint á Jakob Héðin Róbertsson. Jakob spyrnti boltanum viðstöðulaust til baka en boltinn rúllaði rétt framhjá opnu markinu.
Stubbur með stórleik í markinu
Áfram héldu Stjörnumenn hins vegar að fá færi og áfram var það Steinþór Már sem bjargaði. Hann kom þó engum vörnum við þegar Þorri Mar Þórisson komst upp hægra megin seint í uppbótartíma, sendi boltann fyrir, boltinn barst aftur út í teiginn eftir klafs og þar var Þorri Mar mættur til að setja hann í fjærhornið og gulltryggja 3:1 sigur Stjörnunnar.
Sanngjarn Stjörnusigur og KA þarf að halda áfram að reyna að finna út hvernig á að láta liðið fúnkera, því mannskapurinn er til staðar og liðið hefur sýnt það á köflum í sumar að það getur spilað fínan fótbolta. En einhverra hluta vegna hefur ekki náðst að skapa góða liðsheild og finna jafnvægi í liðið.
Næsti leikur KA er útileikur gegn ógnarsterku liði Víkings næstkomandi fimmtudag og aldrei að vita nema KA komi á óvart þegar fæstir búast við því.