Fara í efni
Menning

Joris Rademaker og Myndlíking trjánna

Joris Rademaker heldur sýninguna Myndlíking trjánna um næstu helgi í Deiglunni í Listagilinu. Sýningin verður opnuð kl. 19 á föstudagskvöldið, 16. október, og hún verður opin frá kl. 14 til 17 laugardag og sunnudag.

Til sýnis eru eldri og ný verk unnin út frá lífrænu efni, segir í tilkynningu um sýninguna. „Trén með sínar rætur, stofn, börk og greinar hefur verið innblástur fyrir svarthvítar hvass myndir. Þrívíðu verkin eru samsetningar úr mismunandi lífrænum efnum og fundnum hlutum. Sýningin samanstendur af samtali á milli tvívíðra og þrívíðra verka.“

Þar segir einnig: „Í gegnum árin verður Joris stöðugt meira meðvitaður um þessa djúpu þrá í náttúrunni til þess að vaxa. Verkin eru oftast táknræn og túlka og tjá tilfinningar og tengsl manns og náttúru á persónulegan hátt.“

Joris er hollenskur myndlistamaður sem hefur verið búsettur og starfandi á Akureyri í rúm 30 ár. Hann nam myndlist í Tillburg og í Enschede í Hollandi. Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar m.a. Í Hollandi, á Íslandi, í Svíþjóð og í Þýskalandi. Einnig hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga, s.s. Í Listasafninu á Akureyri og í Listasafni Reykjavíkur.