Menning
Jonna – „Samsýning með sjálfri mér nr. 2“
02.07.2026 kl. 14:00
Listakonan Jónborg Sigurðardóttir, Jonna, fagnar sextugsafmæli í dag, fimmtudag 2. júlí, og af því tilefni opnar hún sýningu í Deiglunni á morgun, föstudag. Sýninguna kallar hún Samsýning með sjálfri mér nr. 2.
„Á sýningunni eru fjömörg verk unnin úr textil og uppnýtingarefnum þar sem viðfangsefnin eru mörg og margvísleg frá hinum og þessum sýningum mínum en það sem þau eiga sameiginlegt er að öll eru unnin úr afgöngum mínum og annara,“ segir listakonan. „Verkin eru afrakstur vinnu minnar síðustu ár en áður hef ég haldið Samsýningu með sjálfri mér árið 2015 og þá voru verk þess tímabils sýnd.“
Sýning Jonnu stendur aðeins í þrjá daga.
- Föstudaginn 3. júlí kl. 14-17
- Laugardaginn 4. júlí kl. 14-17
- Sunnudaginn 5. júlí kl. 14-17
Í tilkynningu frá Jonnu kemur fram að í lok hvers dags verði dansað við dúndrandi tónlist frá kl. 17.00-17.30.