Fara í efni
Minningargreinar

Jón Ingi Cæsarsson – lífshlaupið

Jón Ingi Cæsarsson fæddist í Reykjavík 13. desember 1952. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 7. júní 2025.

Foreldrar Jóns Inga voru Þórdís Eiríksdóttir og Kristvin Kristinsson en hjónin Hulda Ragnarsdóttir og Cæsar Hallgrímsson ættleiddu hann og komu með til Akureyrar sex daga gamlan.

Jón Ingi gekk í Odd­eyr­ar­skóla og Gagn­fræðaskóla Ak­ur­eyr­ar og fór síðar í Póst- og síma­skól­ann. Hann vann allan starfsferilinn hjá Pósti og síma, síðar Ísland­s­pósti og Póst­in­um. Jón Ingi sat lengi í stjórn Póst­manna­fé­lags Íslands, fyrst 1984-1986, aftur 2000-2009 og árið 2017 var hann kjör­inn formaður fé­lags­ins. Gegndi Jón Ingi því embætti til 2023 en settist að því loknu í ritnefnd félagsins.

Jón Ingi starfaði lengi að bæj­ar­mál­um á Ak­ur­eyri fyrir Alþýðuflokkinn og síðan Sam­fylk­ing­una. Hann var kjör­inn fyrsti formaður Samfylkingarinnar á Ak­ur­eyri við stofn­un flokksins árið 2001 og átti einnig sæti í flokks­stjórn. Jón Ingi var vara­bæj­ar­full­trúi um tíma, var formaður skipulagsnefndar og umhverfisráðs, sat einnig í skólanefnd og í nefnd um svæðis­skipu­lag Eyja­fjarðar.

Jón Ingi var virk­ur í þjóðfélagsumræðu til margra ára, Akureyri.net hefur til dæmis birt fjölda greina hans síðustu misseri, einkum um skipulags- og umhverfismál, þá síðustu fyrir fáeinum vikum.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Jóns Inga er Guðrún Gunn­ars­dótt­ir, fædd 1956. Syn­ir þeirra eru 1) Atli Viðar, fæddur 1987, dóttir hans er Guðrún Lára 2) Bjarki Freyr, fæddur 1992, eiginkona hans er Eydís Ósk Pétursdóttir, fædd 1995, og börn þeirra eru Baltasar Leó, Karítas Líf og Mikael Logi.

Dótt­ir Jóns Inga frá fyrra hjónabandi er Brynja, f. 1975, gift Gunnari Guðjónssyni. Börn Brynju eru Móey Pála, Agnar Ingi, Lilja Björk, Katla og Helgi Blær.

Barna­börn­in eru níu og langafa­börn­in þrjú, Adeline Brynja, Ayon Rúnar og Azilia Margrét.

Útför Jóns Inga fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 19. júní, klukkan 13.00.

Jón Ingi Cæsarsson

Kristján L. Möller skrifar
20. júní 2025 | kl. 14:20

Jón Ingi Cæsarsson

Stjórn Arfs Akureyrarbæjar skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Samfylkingin á Akureyri skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Logi Einarsson skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Kristján Snorrason

Birgir Snorrason skrifar
16. júní 2025 | kl. 06:00