Fara í efni
Minningargreinar

Jón Ingi Cæsarsson

Það er margs að minnast þegar við kveðjum Jón Inga. Hann var fyrsti formaður Samfylkingarinnar á Akureyri og sinnti því embætti í mörg ár auk þess að vera í stjórn félagsins allt þangað til í vor. Hann var sá sem kunni skil á flestu því sem upp kom og hjá honum var alltaf hægt að sækja í reynslubankann, hvort sem það snérist um hvernig best væri að bera sig að við kosningar eða rifja upp hluti sem þurfti að halda til haga.
 
Það fór ekki mikið fyrir Jóni Inga í daglegum samskiptum og hann var yfirleitt hægur og rólegur, jafnvel þó verið væri að ræða umdeild mál. Hann blandaði sér ekki í heitar umræður þó að hann hefði einarðar skoðanir á ýmsu. Það var helst þegar hann tjáði sig á netinu, bæði blogginu áður og seinna á Facebook, að hann kvað sterkar að orði um sín hjartans mál, sem voru auðvitað pólitík og einnig umhverfismál. Stundum reyndar þannig að pólitískum keppinautum þótti nóg um. Umhverfismálin voru honum sérstaklega hugleikin og hann átti frumkvæði að því að gera þau að pólitísku viðfangsefni allt frá sjálfbærniráðstefnunni í Ríó í upphafi níunda áratugarins. Þannig kom fram sú sterka réttlætiskennd og pólitíski eldmóður sem bjó innra með honum og dreif hann áfram í pólitísku starfi jafnaðarmanna í áratugi.
 
Við sem á eftir komum njótum enn starfa Jóns Inga og þeirra sem áður voru í fararbroddi í baráttu fyrir réttlátara þjóðfélagi á vettvangi Samfylkingarinnar. Til að mynda var það að hans frumkvæði, ásamt Láru Stefánsdóttur, að koma á laugardagskaffi hjá Samfylkingunni á Akureyri fyrir um 20 árum síðan. Þar kemur fólk saman til að ræða landsins gagn og nauðsynjar auk þess að fara yfir stöðuna í pólitíkinni hverju sinni. Lengi vel sá Jón Ingi að mestu um þetta einn, en síðan var ábyrgðinni skipt á fleiri. Engu að síður mætti hann næstum alltaf til að fara yfir málin á sinn yfirvegaða hátt. Laugardagskaffið hefur unnið sér fastan sess meðal félaga í Samfylkingunni á Akureyri og það verður sjónarsviftir að Jóni Inga þegar það fer af stað aftur eftir sumarleyfi í haust.
 
Við í Samfylkingunni á Akureyri þökkum Jóni Inga Cæsarssyni fyrir áralangt samstarf og vináttu, og vottum fjölskyldu hans og aðstandendum okkar dýpstu samúð.
Samfylkingin á Akureyri

Jón Ingi Cæsarsson

Kristján L. Möller skrifar
20. júní 2025 | kl. 14:20

Jón Ingi Cæsarsson – lífshlaupið

19. júní 2025 | kl. 08:30

Jón Ingi Cæsarsson

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Logi Einarsson skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Stjórn Arfs Akureyrarbæjar skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Kristján Snorrason

Birgir Snorrason skrifar
16. júní 2025 | kl. 06:00