Jói Bjarki sendir frá sér nýtt lag – Ekki neitt
Tónlistarmaðurinn Jóhannes Bjarki Sigurðsson frá Hjalteyri, eða Jói Bjarki, sendi frá sér nýtt lag á dögunum. Lagið Ekki neitt er það fimmta frá honum sem ratar inn í streymisveitur.
Jói Bjarki er búsettur á Akureyri og kveðst hafa verið að dunda í tónlist síðustu árin. Hann segir að lagið Ekki neitt sé samið út frá sjónvarpsþáttum og fjalli um samband tveggja einstaklinga þar sem annar aðilinn gefur allt í sambandið en hinn ekki neitt, þrátt fyrir að báðir aðilar séu jafn ástfangnir.
Jói samdi ekki bara lagið sjálfur heldur sér hann líka um söng og allan hljóðfæraleik í því, nema hvað Sid Neel úr bandarísku hljómsveitinni Terrestrial Animal spilaði á bassa. Jói sá síðan sjálfur um upptökur, ásamt því að mixa og mastera. „Útkoman er að mínu mati skemmtileg blanda af tilfinningum á milli versa og viðlaga,“ segir Jói Bjarki um nýja lagið.
Hér má hlusta á nýja lagið með Jóa Bjarka: