Jafnvægismerkið veitt 163 fyrirtækjum
Fjöldi fyrirtækja og stofnana sem starfa á Akureyri er í hópi þeirra 163 aðila sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2026. Viðurkenningarnar voru afhentar sl. miðvikudag fyrir árangur við að tryggja kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum.
Jafnvægisvogin veitir viðurkenninguna þeim fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum þar sem hlutfall hvors kyns í framkvæmdastjórn er að minnsta kosti 40%. Verkefnið er á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og hefur það að markmiði að stuðla að jafnara kynjahlutfalli í efstu stjórnunarstöðum.
Meðal fyrirtækja sem eru með starfsemi eða starfsstöðvar á Akureyri og hlutu viðurkenningu í ár eru A4, atNorth, ÁTVR, Bústólpi, COWI á Íslandi, Dagar, dk hugbúnaður, EFLA, ELKO, Fiskistofa, Heimilistæki, Hopp, Hreint, Íslandsbanki, Krónan, Lyfja, Norðurorka og Verbúðin 66.
Þá hlutu Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri og Menningarfélag Akureyrar einnig viðurkenningu. Listann með öllum þeim 163 fyrirtækjum og stofnunum sem hlutu viðurkenningu má sjá hér.

Viðurkenningarhafar 2026.
Konur enn í minnihluta í efstu stjórnunarstöðum
Þrátt fyrir fjölgun viðurkenningarhafa eru konur aðeins 21,3% framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi. Af þeim sem ráðnir voru í framkvæmdastjórastöður hjá 300 stærstu fyrirtækjum landsins árið 2025 voru 71% karlar.
Á hlutabréfamarkaði hefur hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum félaga á Aðalmarkaði íslensku kauphallarinnar hækkað úr 33,3% í 35,4% milli ára. Konur gegna hins vegar aðeins fimm af 27 forstjórastöðum þessara félaga og einni stöðu stjórnarformanns.
„Jafnrétti er ákvörðun. Viðurkenningarhafarnir sýna að það er hægt að ná jafnvægi þegar stjórnendur setja skýr markmið og fylgja þeim eftir,“ segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarformaður Jafnvægisvogarráðs í fréttatilkynningu. Hún hvetur stjórnir og stjórnendur til að horfa víðar þegar ráðið er í stjórnunarstöður og nýta hæfileika sem kunna að liggja utan þeirra hópa sem jafnan hafa komið til greina.
Yfirskrift viðurkenningarhátíðarinnar í ár var Losum um hnútinn og vísar hún til þess að stjórnendur, stjórnir og eigendur þurfi að fylgja jafnréttismarkmiðum eftir með raunverulegum ákvörðunum.