Fara í efni
Menning

Í bleikum kjól og með hatt í október

Í tilefni af Bleikum október hafa systurnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten sett upp gluggasýninguna Í bleikum kjól og með hatt á vinnustofu þeirrar síðarnefndu í Hafnarstræti 88.

„Málefnið stendur þeim nærri enda greindist Brynja með brjóstakrabbamein árið 2021 og lauk meðferð ári síðar. Formlegri eftirfylgni lauk á þessu ári og voru það heilmikil tímamót fyrir Brynju sem er frísk í dag,“ segir í tilkynningu frá systrunum.

GLUGGINN – sýningarrýmið – „virðist alsæll með sýninguna enda skreyttur bleikum kjólum, höttum og skóm. Hann virðist jafnvel taka dansspor og benda íbygginn á gifsbrjóst í gluggakistunni. Um er að ræða afsteypu af brjóstum Brynju sem tekin var áður en krabbameinið var skorið í burtu,“ segir í tilkynningunni. Brynja bætir við, kankvís: „það er ekki á hverjum degi sem ég er með brjóstin mín út í glugga.“

Að sögn Brynju er ósk þeirra systra að Glugginn vekji athygli á árlegu árveknisátaki gegn krabbameinum hjá konum og minni fólk á að skoða brjóst sín reglulega. Eins vilja þær systur hvetja fólk til að nota leikinn sem bjargráð í amstri dagsins. „Það er svo heilandi að gleyma sér í leik, hvort sem hann er sjálfsprottinn eða útpældur – og gluggasýningar okkar systra eru gott dæmi um slíkt,“ segir Brynja.