Hyrna Standard – ný norðlensk innréttingalína
Húsheild Hyrna á Akureyri hefur sett á markað nýja vörulínu, Hyrna Standard, staðlaðar innréttingar sem eru að megninu til á lager. Markmiðið með vörulínunni er að bjóða heimilum á Norðurlandi hraðari afhendingu og skapa raunhæfan valkost við innfluttar lausnir á borð við IKEA, HTH og aðra stóra aðila.
„Þú átt ekki að þurfa að fara suður til Reykjavíkur til að versla innréttingar. Með tilkomu Hyrnu Standard áttu að geta gert það í heimabyggð og Akureyringar vilja versla í heimabyggð ef valkostirnir standast kröfur um gæði, þjónustu og afhendingu,“ segir Eiríkur Guðbergur Guðmundsson, sölu- og framleiðslustjóri hjá Húsheild Hyrnu.

Hyrna Standard eru staðlaðar innréttingar í eldhús, bað- og þvottahús, auk fataskápa. Einingarnar eru að megninu til á lager hjá Húsheild Hyrnu og afhendingartíminn er aldrei lengri en 7-10 virkir dagar.
Þægileg lausn í heimabyggð
Húsheild Hyrna hefur um árabil verið þekkt sem öflugt byggingarfyrirtæki í bænum. Fyrirtækið er með mörg stór verkefni í gangi um þessar mundir eins og nýbyggingu við Jarðböðin í Mývatnssveit, leikskólann Hagastein í Hagahverfi, fjölbýlishús með 50 íbúðum við Skarðshlíð 20 og þjónustubyggingu og stúku á KA svæðinu, svo fátt eitt sé nefnt. „Það sem færri vita er að bæði glugga-, hurða- og innréttingaframleiðsla hefur alltaf verið hluti af starfsemi fyrirtækisins. Þessi framleiðsla hefur hingað til að stærstum hluta þjónað okkar eigin byggingarverkefnum og verktökum, en með því að bjóða upp á Hyrnu Standard vörulínuna, þar sem áhersla er lögð á staðlaðar einingar í eldhús, bað- og þvottahús, auk fataskápa, erum við að koma til móts við almenning og bjóða upp á þægilega lausn í heimabyggð,“ segir Eiríkur.

Hyrna standard er byggð á tímalausum grunni með fjórum stöðluðum litum á framhliðum. Þá leysir fyrirtækið einnig sérpantanir sé þess óskað. Hér leggur Eiríkur á ráðin með Evu Tryggvadóttur, innanhússhönnuði og smiðnum Ísaki Elí Marinóssyni. Mynd:SNÆ
Fjórir staðlaðir litir
Innréttingarnar í Hyrna Standard línunni eru úr þýskum gæðaefnum en sömu efni eru notuð í sérsmíði hjá fyrirtækinu. Eiríkur segir vörulínuna byggja á tímalausum grunni með fjórum litum í staðlaðri framleiðslu, þar af sé sérliturinn „Nude“ sem fæst eingöngu hjá fyrirtækinu en um er að ræða ljósan lit sem er hlýrri og mýkri en hreinn hvítur. „Þá er líka hægt að fara þá leið að kaupa stöðluðu einingarnar án framhliða og síðan velja aðrar útfærslur, til dæmis sprautulökkun sem hentar vel ef fólk vill einhvern sértækan lit eða stíl, en allar breytingar út frá stöðluðu línunni eru þó með lengri afhendingu,“ segir Eiríkur.

Húsheild Hyrna er til húsa að Sjafnargötu 3, Akureyri. Mynd:SNÆ
Samsettar einingar
Aðspurður um verðið á þessum stöðluðu innréttingum segir hann að einingarnar séu afhentar samsettar, þannig að viðskiptavinur þurfi fyrst og fremst að koma þeim fyrir og festa. „Þú setur þetta á sökkul og skrúfar á vegginn. Ef þú metur þinn tíma í lífinu, kostnaðarlega séð, þá er ódýrara að kaupa þessar innréttingar heldur en að eyða kannski heilu kvöldunum í að skrúfa saman einhverja skápa,“ segir Eiríkur og bætir við að fyrirtækið bjóði líka upp á uppsetningu, og einnig að rífa eldri innréttingar niður eftir samkomulagi.

Húsheild Hyrna er með Instagram reikninginn hh_innrettingar_gluggar þar sem oft er slegið á létta strengi. Eiríkur sölu-og framleiðslustjóri var t.d. með skemmtilegt jóladagatal þar inni fyrir jólin. Takið eftir náttborðinu á myndinni til hægri, það er stöðluð vara hjá fyrirtækinu en það er unnið úr afgangsefni sem til fellur við aðra framleiðslu.
Samsettar innréttingar, stuttur afhendingartími
Það sem er að sögn Eiríks hins vegar stærsti kosturinn við Hyrnu standard er hversu stuttur afhendingartíminn er. „Þú pantar og færð innréttinguna tilbúna til uppsetningar innan 7–10 virkra daga. Til samanburðar þá getur biðtími hjá stærri aðilum verið vikur eða mánuðir, sérstaklega ef eitthvað vantar inn í pöntun,“ segir Eiríkur.
Það sem við höfum fram yfir alla innflutta framleiðslu er þetta íslenska handverk og þekking, og það að geta brugðist hratt við ef eitthvað þarf að laga.
Tafir á innréttingum geti því orðið dýrar, sérstaklega þegar smiðir eru komnir í vinnu. Þá bendir hann jafnframt á að ef eitthvað vanti eða þurfi að laga varðandi innréttingar frá þeim sé stutt í þjónustuna en stefnt sé að því að kvörtunum sé mætt hratt og vel.

Húsheild Hyrna hefur um árabil verið þekkt sem öflugt byggingafyrirtæki í bænum. Það sem færri vita er að bæði glugga-, hurða- og innréttingaframleiðsla hefur alltaf verið hluti af starfsemi fyrirtækisins. Með Hyrna Standard verður innréttingalína hilluvara hjá fyrirtækinu. Mynd: SNÆ
Spilast vel við önnur verkefni
Samkeppnisforskot Hyrnu Standard liggur því ekki í því að vera ódýrastir í hráefniskostnaði, heldur í skipulagi, hraða og handverki en mikil reynsla liggur á verkstæði fyrirtækisins. „Það sem við höfum fram yfir alla innflutta framleiðslu er þetta íslenska handverk og þekking, og það að geta brugðist hratt við ef eitthvað þarf að laga. Þessi framleiðsla stendur undir sér af því að við erum ekki að fara í endalausar breytingar og sérlausnir. Það eru breytingarnar sem eru svo dýrar. Við stöðlum einingarnar, kaupum efnið í meira magni og höfum framleiðsluna stöðugt í gangi. Verkstæðið og fólkið voru hér fyrir og við erum með þessu að nýta verkstæðið okkar betur og opna innréttingarframleiðsluna fyrir almenningi,“ segir Eiríkur sem vonast til þess að Hyrna Standard verði orðið þekkt vörumerki innan nokkurra ára og raunhæfur valkostur þegar fólk er að hugsa um breytingar heima hjá sér. Segir hann að vörulínan styðji vel við annað sem Húsheild Hyrna sé að gera en verkstæði fyrirtækisins er sinnir einnig glugga- og hurðaverkefnum. „Ef það harðnar í ári í öðru þá getum við gefið í í hinu. Þetta spilar vel saman. Við erum ekki að keppa við erlendar verksmiðjur í magni, heldur í hraða, sveigjanleika og íslensku handverki.“

Dæmi um uppsetningu á Hyrnu Standard. Innréttingarnar eru úr þýsku gæðaefni. Samkeppnisforskot Hyrnu Standard liggur ekki í því að vera ódýrastir í hráefniskostnaði, heldur í skipulagi, hraða og handverki en mikil reynsla liggur á verkstæði fyrirtækisins, segir Eiríkur.