Fara í efni
Fréttir

Hvar eru kosningakaffi og kosningavökur?

Oddvitarnir átta á Akureyri í stafrófsröð bókstafa framboðanna. Efri röð frá vinstri: Þórhallur Jónsson A-lista, Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista, Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir C-lista og Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista. Neðri röð frá vinstri: Óðinn Svan Óðinsson L-lista, Hlynur Jóhannsson M-lista, Sindri S. Kristjánsson S-lista og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista.

Enginn þarf að svelta á kjördag nema sá sem kýs að fara þannig í gegnum daginn. Eins og hefð er fyrir bjóða öll átta framboðin í bæjarstjórnarkosningunum upp á kosningakaffi og í kvöld verða átta kosningavökur þar sem frambjóðendur, stuðningsmenn og hugsanlega fleiri fylgjast grannt með fyrstu tölum og síðan hvernig framvindan verður.

Hér má sjá lista yfir það hvar framboðin verða niðurkomin í dag og í kvöld.


AAkureyrarlistinn
Oddviti: Þórhallur Jónsson

  • Kosningakaffi – Hvalaskoðunarhús Eldingar við Hof – 14:30 til 17:00
  • Kosningavaka – Sami staður frá kl. 21:00

BFramsókn
Oddviti: Sunna Hlín Jóhannesdóttir

  • Kosningakaffi – Salur Rauða krossins, Viðjulundi 2 – 13:30 til 16:00
  • Kosningavaka – Leynibar í göngugötunni frá kl. 21:00

CViðreisn
Oddviti: Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir

  • Kosningakaffi – Salur Einingar-Iðju, Alþýðuhúsinu við Skipagötu – 13:30 til 15:30
  • Kosningapartý – Centrum í göngugötunni frá kl. 19:00

DSjálfstæðisflokkurinn
Oddviti: Berglind Ósk Guðmundsdóttir

  • Kosningakaffi – LÓN, Hótel Akureyri – 13:00 til 16:00
  • Kosningavaka – Kosningaskrifstofan, Furuvöllum 5, frá kl. 21:30 til 01:00

LL-listinn
Oddviti: Óðinn Svan Óðinsson

  • Kosningakaffi – Terían á neðstu hæð Hótels Kea – 15:00 til 17:00
  • Kosningavaka – Græni hatturinn frá kl. 21.00

MMiðflokkurinn
Oddviti: Hlynur Jóhannsson

  • Kosningakaffi – Lionssalurinn, Alþýðuhúsinu við Skipagötu – 14:00 til 16:00
  • Kosningavaka – Sami staður frá kl. 21:00

SSamfylkingin
Oddviti: Sindri S. Kristjánsson

  • Kosningakaffi – Leynibar í göngugötunni – 14:00 til 17:00
  • Kosningavaka – Sunnuhlíð frá kl. 22:00

VVinstri hreyfingin - grænt framboð
Oddviti: Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir

  • Kosningakaffi – Brekkugata 7 – 14:00 til 18:00
  • Kosningavaka – Sami staður frá kl. 21:00