Fara í efni
Fréttir

Hvar eru efndirnar, bæjarfulltrúar?

„Fyrir kosningarnar í vor gáfu allir þrír flokkar núverandi meirihluta fyrirheit um bætta félagsaðstöðu eldri borgara. Þess vegna á ekki að þurfa að sannfæra meirihlutann um þörfina. Flokkarnir viðurkenndu hana sjálfir og báðu um umboð kjósenda til að gera betur.“

Þetta segja Björn Snæbjörnsson og Karl Erlendsson í grein sem akureyri.net birti í morgun. Þeir titla sig „eldra borgara á Akureyri“ og skrifa greinina sem slíkir en ekki sem forsvarsmenn aldurshópsins, en vert er að geta þess að Karl er formaður Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og Björn formaður Landssambands eldri borgara og auk þess varaformaður EBAK.

„Fyrir kosningar voru gefin loforð. Eftir kosningar var undirritaður málefnasamningur. Nú köllum við eftir efndum,“ segja þeir í greininni.

Björn og Karl skrifa: Þeir sem setja slíkt loforð í málefnasamning þurfa að geta sagt hvernig þeir hyggjast efna það. Hvaða húsnæði kemur til greina? Hvað mun lausnin kosta? Hvenær verður ákvörðun tekin? Hvenær fá félagsmenn lyklana?

„Þetta eru eðlilegar spurningar frá fólki sem hefur beðið lengi. Svörin þurfa að vera skýrari en að málið sé til skoðunar.“

Í greininni kemur fram að í Félagi eldri borgara á Akureyri eru 3250 manns og hefur fjölgað um liðlega 1000 á síðust þremur árum. 

Grein Björns og Karls: Félagsheimili eldri borgara á Akureyri