Fara í efni
Mannlíf

Hvað veistu um sushi og hvað alls ekki?

„Saga sushi er alls ekki einföld saga um hráan fisk á hrísgrjónum. Hún er saga um langa og marglaga þróun matarmenningar sem spannar meira en tvö þúsund ár.“

Þannig kemst Þráinn Lárusson að orði í stórfróðlegum og bráðskemmtilegum matarpistli sem akureyri.net birtir í dag.

„Sushi er oft misskilið og sagt vera hrátt sjávarfang, sem það er alls ekki,“ segir Þráinn meðal annars. Hann rekur söguna og fjallar líka um algengan misskilning um sushi, þar sem eitt og annað kann að koma mörgum á óvart, t.d. það sem hann segir um soja sósu og wasabi.

  • Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.

Grein Þráins í dag: Sushi er ekki hrár fiskur