Sumarnámskeið fyrir börn – Hvað er í boði?

Nú styttist í það að grunnskólar Akureyrar fari í sumarfrí og margir foreldrar því farnir að spá í sumartómstundir fyrir börn sín. Akureyri.net hefur kynnst sér úrvalið og tekið saman lista yfir helstu námskeið sem eru í boði. Eins og sjá má hér fyrir neðan er úrvalið fjölbreytt og hægt að skrá sig bæði í íþróttir af ýmsum toga, sumarbúðir, sumarskóla og listasmiðjur.
- Reiðnámskeið Léttis
Hestamannfélagið Léttur stendur fyrir nokkrum reiðnámskeiðum í sumar fyrir börn á grunnskólaaldri. Námskeiðin eru á tímabilinu júní-ágúst. Boðið er upp á námskeið bæði fyrir minna vana og meira vana. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við lettir@lettir.is Kennt er í reiðhöll Léttis í Lögmannshlíð.
- Golfskóli GA
Golfklúbbur Akureyrar verður með golfskóla í sumar fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára sem vilja læra grunntækni golfsins. Boðið er upp á 6 námskeið á tímabilinu 2. júní - 1. ágúst. Hvert námskeið er vika í senn. Kennt er á morgnana frá 10 til 12.30 og er hægt að fá lánaðar kylfur á staðnum.
- Leiklistarnámskeið í Hofi
Fjögur leiklistarnámskeið verða í boði í Hofi í sumar á vegum Leikfélags Akureyrar. Hvert námskeið stendur í fjóra daga í senn. Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2015 - 2018. Tvö námskeið verða í júní og tvö í ágúst. Kennt er á morgnana. Kennarar eru Margrét Sverrisdóttir og Jenný Lára Arnórsdóttir.
- Leikjanámskeið í Skautahöllinni
Skautafélag Akureyrar verður með tvö leikjanámskeið í júní. Leikjanámskeiðin fara fram bæði á útisvæðinu við Skautahöllina og inni á skautasvellinu. Hægt er að velja á milli þessa að vera í listskautum eða í fullum hokkíbúnaði í leikjunum á námskeiðinu. Allur búnaður er innifalinn og engin reynsla á skautum nauðsynleg.
Mynd: www.ka.is
- Leikjaskóli KA í Naustaskóla
Leikjaskólinn fer fram í íþróttahúsinu við Naustaskóla í júní og júlí. Skólinn er eingöngu fyrir krakka fædda 2014 - 2019 og stendur frá kl 08:00 á morgnanna og lýkur kl.12:30. Greitt er fyrir staka viku í senn en alls eru 8 námskeið í boði. Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 100 börn. Þá gefst öllum börnum sem æfa knattspyrnu hjá félaginu verður gefinn kostur á að fara á æfingu, annaðhvort á skólatíma eða þegar skólanum lýkur. Fá krakkarnir fylgd með starfsmönnum skólans.
- Fim-leikjaskólinn
Fimleikadeild KA verður með fim-leikjaskóla fyrir 7-10 ára (2015-2018) í íþróttahúsinu við Giljaskóla. Hvert námskeið stendur í viku og verða alls 4 námskeið í boði.Námskeiðin samanstanda af fimleikaæfingum og ýmsum leikjum, bæði úti og inni.
- Sumarnámskeið í Glerárkirkju og í Akureyrarkirkju
Í Glerárkirkju verða í boði þrjú sumarnámskeið fyrir krakka í 1.-4. bekk í sumar. Námskeiðin eru í júní og eru frá kl. 9 til 15. Akureyrarkirkja ætlar líka ð bjóða upp á tvö ókeypis sumarnámskeið og eru bæði náskeiðin í júní. Námskeiðin eru fyrir krakka á aldrinum 10-12 ára.
- Grunnnámskeið í skyndihjálp
Þann 10. Júní verður haldið skyndihjálparnámskeið í húsnæði Rauða krossins að Viðjulundi 2. Námskeiðið er ætlað börnum og ungmennum á aldrinum 12-16 ára sem vilja læra grunnatriði skyndihjálpar og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeiðið stendur frá 16.30-20. 30.
- Dansað, leikið, skapað og föndrað hjá DSA
Danstúdíó Alice verður með tvö skapandi leikjanámskeið í boði í júní fyrir börn fædd 2018-2015. Hvort námskeið eru 4 virkir dagar og verður boðið upp á skapandi verkefni inni og úti í náttúrunni.
- Fjölbreytt sumarnámskeið hjá Steps
Steps dansstúdíó verður með fjölbreytta dagskrá í boði í sumar. Þar verður t.d boðið upp á tveggja vikna krílanámskeið fyrir börn fædd 2019-2020 dagana 30. júní - 11. júlí og dans- og leikjaskóla fyrir krakka í 1.-3. bekk 30. júní-4. júlí.
Mynd: Facebooksíða Gokart Akureyri
- Gokart akstursnámskeið
Í sumar verða boði í Gokart námsskeið fyrir krakka á aldrinum 10 til 17 ára. Námskeiðin verða haldin á tímabilinu 10. júní til 15. ágúst. Hvert námskeið stendur í viku en þó aðeins í 1 klst á dag. Á námskeiðinu er krökkum kennd umgengni og grunnviðhald á Gokart bílum og skilningur á akstri, akstursöryggi og lestri á aksturslínum. Allir fá til afnota galla og öryggishjálma.
- Stuð í sumarbúðunum að Ástjörn og á Hólavatni
Sumarbúðir verða í boði bæði á Ástjörn og Hólavatni en báðar sumarbúðirnar hafa verið vinsælar hjá Akureyrskum krökkum. Á Ástjörn eru allir flokkar blandaðir og hver dvöl er í 8 sólarhringa. Á Hólavatni er í boði bæði blandaðir flokkar og stelpuflokkar og er hver dvöl 4 dagar.
- Hreyfing hjá NorðurAK
Líkamsræktarstöðin Norður Akureyri verður með námskeið fyrir krakka í boði í sumar á tímabilinu 10. júní - 13. ágúst. Þrír hópar verða í boði: 6-9 ára þriðjudaga og fimmtudaga kl. 9:45 og 10-14 ára þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11 og 14:30.
- Félagsmiðstöðvafjör í júní
Fyrir árganga 2012-15 verður félagsmiðstöðvafjör í boði í sumar á tímabilinu 9.-19.júní. Ýmislegt skemmtilegt verður brallað, eins og að grilla, fara í sund og hjólaferðir.
Mynd tekin í Vísindaskólanum í fyrra af Axeli Darra Þórhallssyni.
- Pöddur, gervigreind og fleira í Vísindaskóli Unga fólksins
Vísindaskólinn verður haldinn í ellefta sinn dagana 23.-27. júní. Markmið Vísindaskólans er að bjóða ungmennum fædd 2012-2014 upp á fræðandi og skemmtilega afþreyingu í gegn um fimm námskeið sem nemendur fara allir í gegnum.
- Keramik, málun, teikning og grafík
Samlagið sköpunarverkstæði, Gránufélagsgötu 46, verður með sumarlistnámskeið í boði fyrir krakka í júní . Í boði eru hópar bæði fyrir 6-11 ára og fyrir 12-16 ára. Farið verður í mismunandi listmiðla eins og keramik, málun, teikningu og grafík. Afraksturinn verður sýndur á sýningu þann 27. júní í Samlaginu. Skráning á Abler undir Rósenborg.
- Siglinganámskeið hjá Nökkva
Siglingaklúbburinn Nökkvi verður með siglinganámskeið fyrir krakka á aldrinum 8-15 ára. Hvert námskeið stendur í viku og er hægt að velja um tíma bæði fyrir og eftir hádegi á tímabilinu 10. júní-15. ágúst. Börnin kynnast og læra á seglbáta, kajaka og árabáta, ásamt því að læra öryggis- og umgengisreglur um báta og sjó.
- Þriggja daga vísindasmiðja
Lesendum er velkomið að senda inn upplýsingar á netfangið snaefridur@akureyri.net viti þeir um fleiri sumarnámskeið sem ekki eru talin upp hér að ofan.