Hvað er pasta og hvar byrjar sagan?
Þráinn Lárusson fjallar um pasta í pistli sem akureyri.net birtir í dag; það er fyrri hluti af tveimur um þetta gríðarlega vinsæla, soðna deig.
„Hvar á að byrja þegar rakin er saga pasta? Í Feneyjum á 13. öld? Í Napólí á 18. öld? Eða kannski í Kína þar sem deig í ýmsum útfærslum hefur verið mótað og soðið um aldir?“ spyr Þráinn. „Slíkar spurningar hafa löngum ýtt undir þjóðernislegar vangaveltur og deilur um hver hafi fundið upp hvað. En sagan er ekki svo einföld. Hugmyndin um að pasta hafi borist til Ítalíu með Marco Polo á 13. öld telst ein algengasta mýtan um uppruna pasta. Ætli maður að skilja þróunina í alvöru þarf að byrja miklu fyrr. Sagan hefst hvorki á Ítalíu né í Kína – hún hefst með“ korni.
- Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.
Pistill Þráins í dag: Pasta basta! En hvað er pasta – og hvar byrjar sagan?