Fara í efni
Íþróttir

Húsasmiðjan semur við handboltadeild KA

Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar, og Haddur Stefánsson, formaður handknattleiksdeildar KA.

Húsasmiðjan verður einn af styrktaraðilum handknattleiksdeildar KA næstu þrjú árin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fyrirtækið verður sýnilegt með merkingum á gólfi á heimaleikjum KA, eins og það er orðað.

Haft er eftir Haddi J. Stefánssyni, formanni handknattleiksdeildar KA að  stuðningur fyrirtækja skiptir íþróttahreyfinguna gríðarlegu máli. „Við bjóðum Húsasmiðjuna velkomna í hóp styrktaraðila okkar og um leið óskum þeim til hamingju með nýja og glæsilega verslun. Við erum sannfærð um að þetta hjálpi okkur til að ná markmiðum okkar.“

Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar segir í tilkynningunni: „Það er hluti af okkar samfélagsstefnu að styðja við góð málefni í þeim samfélögum sem við störfum. Nú höfum við opnað glæsilega verslun hér á Akureyri og því þykir okkur mikilvægt að styðja um leið við góð málefni hér á svæðinu og um leið þakka fyrir frábærar viðtökur hér.“