Fara í efni
Mannlíf

Hús Nunna og Stellu í tæpa sex áratugi

„Mest þeirra gilja, er skera Akureyrarbrekkuna, er Búðargil. Um það rennur Búðarlækurinn en framburður hans myndaði hina upprunalegu Akureyri. Gilið er stundum ranglega nefnt Lækjargil en það gæti komið til af því, að um gilið liggur Lækjargata. Neðarlega í Lækjargötu er líklega einhver brattasti götustubbur Akureyrar en þar sem gatan liggur milli húsa 9, 11 og 14 er gríðarbratt klif á um 50 metra kafla. Á sínum 620 metrum eða svo hækkar gatan um rúma 50 metra yfir sjávarmáli og geta menn þá spreytt sig á að reikna út hallann.“ 

Þannig hefst nýr húsapistill Arnórs Blika Hallmundssonar, þar sem hann fjallar um Lækjargötu 22 á Akureyri; hús þar sem kunn hjón, Gunnar Konráðsson – Nunni Konn – og Stella Stefánsdóttir, bjuggu í nærri sex áratugi.

Arnór Bliki segir meðal annars: „Efst húsa við Lækjargötu er hús númer 22. Skráð byggingarár hússins er 1916 en rekja má uppruna hússins til ársins 1906. Þannig að hvort sem miðað er við 1906 eða 1916 sem byggingarár, á húsið stórafmæli á árinu 2026!“

Pistill Arnórs Blika: Lækjargata 22