Fara í efni
Fréttir

Hundar á Listasafninu og Hreimur á hattinum

Í kvöld eru hundar velkomnir á Listasafnið á Akureyri ásamt eigendum sínum á sérstakri kvöldopnun. Safnið verður opið frá kl. 19:00 til 21:00 „og ókeypis inn fyrir eigendur í fylgd hunda,“ eins og segir í tilkynningu frá safninu.
 
„Léttar veitingar í boði fyrir fjórfætlinga og fyrstu gestir fá óvæntan glaðning. Á Ketilkaffi verður hægt að kaupa sérstakar veitingar fyrir besta vininn,“ segir þar.
 
Vakin er athygli á því að í safninu „þurfa allir hundar að vera í taumi og eru á ábyrgð eigenda sinna.“
 
  • Einir tónleikar eru í bænum í kvöld. Hreimur Örn Heimisson treður upp á Græna hattinum, í fyrsta skipti einn með gítarinn. „Öll mín bestu lög og það sem okkur dettur í hug,“ segir  hanní kynningu. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00