Húnavallaleið ekki í nýju skipulagi
Bæjarstjórn Akureyrar leggur ríka áherslu á að stytting og nútímavæðing þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur sé eitt stærsta og mikilvægasta hagsmunamál bæjarfélagsins til framtíðar litið. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í bókun sem samþykkt var samhljóða á bæjarstjórnarfundi á dögunum.
Sindri S. Kristjánsson, bæjarfulltrúi S-lista, var málshefjandi og sagði meðal annars að bæjarstjórn Akureyrar mætti ekki taka að sér hlutskipti áhorfenda þegar kemur að samgöngum og innviðauppbyggingu á landsbyggðinni. Sindri nefndi lagningu Húnavallaleiðar sérstaklega í þessu sambandi og benti á að í vönduðum greiningum komi fram að hún sé í hópi arðbærustu samgönguframkvæmda sem völ er á í landinu. Þar komi fram tölur sem bæjarstjórn Akureyrar verði að halda á lofti. Sindri nefndi jafnframt að með öðrum mögulegum nýframkvæmdum, svo sem Vindheimaleið í Skagafirði og Sundabraut við Reykjavík væri hægt að stytta leiðina um nær 30 kílómetra.

Mynd úr grein Jónasar B. Guðmundssonar, forsvarsmanns Samgöngufélagsins, sem birtist á akureyri.net 7. apríl 2026. Þarna má sjá með bláu hugmyndir um hvar Húnavallaleið og Vindheimaleið gætu legið.
Húnavallaleið ekki í nýju skipulagi
Eitt tilefni þess að Sindri hóf þessa umræðu núna er að nú er í umsögn nýtt aðalskipulag Húnabyggðar. „Hvað sjáum við þar?“ spurði Sindri. „Því miður sjáum við þar að það er ekkert gert ráð fyrir þessari lífnauðsynlegu styttingu í framtíðarskipulagi svæðisins. Vegir verða aldrei lagðir nema gert sé ráð fyrir þeim í skipulagsáætlun sveitarfélags. Ef Húnavallaleið verður tekin út af borðinu í aðalskipulagi nágranna okkar þá er verulega þrengt að möguleikanum á vegaframkvæmd sem skiptir allt Norðurland og í raun og veru allt landið í heild sinni gríðarlegu máli, um árabil og mögulega áratugi. Hér getur Akureyrarbær að mínu mati ekki setið hjá.“
Sindri sagði jafnframt að rétt væri að Akureyrarbær sendi inn formlega, málefnalega og afgerandi umsögn við skipulagið með þeim tölum sem hann fór yfir í ræðu sinni varðandi styttingu leiðarinnar og sparnað henni tengda.
Í umræðunni vöktu Þórhallur Jónsson A-lista, Hlynur Jóhannsson M-lista og Heimir Örn Árnason D-lista, einnig athygli á mikilvægi jarðganga undir Öxnadalsheiði, ekki aðeins fyrir styttingu leiðar heldur fyrir öryggi í samgöngum og flutningum til og frá svæðinu. Hlynur gekk reyndar svo langt að segja að Akureyringar hafi verið samdauna sveitarfélögunum í kring í því að berjast fyrir göngum sem hafi engan tilgang fyrir Akureyringa, sagði tíma Akureyrarbæjar innan Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra liðinn og að bæjarstjórn ætti að fara að berjast meira fyrir hagsmunum Akureyringa.
Bókun bæjarstjórnar
Bókunin var samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum í bæjarstjórn og er svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrar leggur ríka áherslu á að stytting og nútímavæðing þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur er eitt stærsta og mikilvægasta hagsmunamál bæjarfélagsins til framtíðar litið. Greiðar, öruggar og styttri samgöngur á landi eru grundvallarforsenda fyrir lífsgæðum íbúa, auknu umferðaröryggi og samkeppnishæfni atvinnulífs á svæðinu, auk þess að styðja við skilgreint hlutverk Akureyrar sem svæðisborgar og raunverulegs mótvægisafls við suðvesturhornið.
Bæjarstjórn áréttar mikilvægi þess að heildarhagsmunum svæðisins sé gætt í hvívetna við alla innviðauppbyggingu og stefnumótun á landsvísu. Til að fylgja þessum hagsmunum markvisst eftir mun bæjarstjórn einsetja sér að senda ávallt inn formlegar umsagnir og ábendingar þegar til umfjöllunar eru breytingar á lögum, stefnum, áætlunum eða öðru sem snertir eða getur haft áhrif á framgang þessara brýnu samgönguhagsmuna.