Fara í efni
Menning

Hulda sýnir allt frá englum til abstraktverka

Hulda Ólafsdóttir opnar á morgun þriggja daga sýningu á akrýlmyndum í Deiglunni á Akureyri. „Myndefnið er fjölbreytt; allt frá englum í abstrakt, blóm, landslag, andlit eða það sem mig hefur langað til að gera þá stundina,“ segir listakonan.
 
Hulda byrjaði að mála akrýlmyndir snemma á þessu ári og sýnir nú afraksturinn. „Ég var á myndlistarbraut í Myndlistarskólanum á Akureyri, tók diplómanám í tískuhönnun á Ítalíu, lærði grafíska hönnun á Akureyri og svo hef ég verið að bæta við mig markþjálfun, heilun og dáleiðslu auk þess að eiga og reka fyrirtækið Hjartalag. Ég hef gaman af því að skrifa ljóð og texta sem ég nota víða í minni hönnun,“ segir hún.
 

Hulda Ólafsdóttir sem opnar sýningu í dag í Deiglunni.
Þetta er fyrsta sölusýning Huldu á akrýlverkum.
 
  • Sýningin verður opnuð á morgun, föstudag, klukkan 16.00, og opin til kl. 20:00.
  • Á laugardag og sunnudag verður sýningin opin frá kl. 13:00 til 17:00.