Fara í efni
Fréttir

Hulda Guðmundsdóttir nýr formaður Kjalar

Arna Jakobína Björnsdóttir (t.v.) lét af störfum eftir 34 ár sem formaður Kjalar á aðalfundi félagsins og Hulda Guðmundsdóttir (t.h.) tók við. Mynd: kjolur.is.

Á aðalfundi stéttarfélagsins Kjalar í síðustu viku lét Arna Jakobína Björnsdóttir af starfi formanns, eftir að hafa gegnt því í 34 ár. Hulda Guðmundsdóttir er nýr formaður félagsins og ýmsar aðrar mannabreytingar urðu í stjórninni. Á aðalfundinum voru samþykktar ályktanir um boðað afnám réttinda ríkisstarfsmanna og áherslumál í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Á fundinum fór Arna Jakobína yfir skýrslu stjórnar og og kom fram í ræðu hennar að starf félagsins einkenndist af öflugri réttindabaráttu, markvissri þjónustu og áframhaldandi eflingu félagsins. Í lokaorðum sínum lagði hún áherslu á mikilvægi samstöðu og að félagið væri fyrir félagsfólkið, að því er kemur fram í frétt á vefsíðu Kjalar. „Stéttarfélag er fólkið sjálft – samstaða þess og vilji til að standa saman þegar á reynir. Ég er ánægð með það sem hefur áunnist og óska félaginu og þeim sem taka við alls hins besta í framtíðinni,“ sagði Arna Jakobína í sínu síðasta ávarpi sem formaður Kjalar undanfarin 34 ár.

Hulda Guðmundsdóttir var ein í kjöri til formennsku í félaginu en hún hefur verið varamaður í stjórn Kjalar frá 2023 og starfað sem verkefnastjóri á skrifstofu félagsins frá síðastliðnu hausti. „Ég geri mér grein fyrir að þetta er erilsamt starf og fjölbreytt en veit líka að ég hef að baki mér mikla þekkingu og reynslu hjá starfsfólki félagsins sem og félagsfólki. Það er bæði heiður og tilhlökkun að fá að leiða félagið áfram með öllu þessu góða fólki,“ segir Hulda í frétt á vef Kjalar. Ýmsar aðrar breytingar urðu á stjórn félagsins og m.a. er Baldur Magnússon nýr varaformaður.

Fallið verði frá frumvarpi um afnám áminningarskyldu

Á aðalfundinum var samþykkt ályktun um að krefjast þess að fjármálaráðherra dragi til baka frumvarp um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og hugi frekar að því að draga úr álagi og óviðunandi starfsaðstæðum og tryggi frekar starfsfólki gott starfsumhverfi. Að afnema áminningarskyldu væri sú allra stærsta réttindaskerðing á íslenskum vinnumarkaði í áratugi. Bent er á að í þeim löndum sem við kjósum að bera okkur saman við er sambærileg áminningarskylda viðtekin á bæði almennum og opinberum vinnumarkaði.

Þá var einnig samþykkt ályktun um mikilvægi vandaðra og ábyrgra vinnubragða í aðdraganda og kjölfar sveitarstjórnarkosninga. „Skorað er á alla frambjóðendur til sveitarstjórna að kynna sér ítarlega hlutverk, skyldur og ábyrgð kjörinna fulltrúa, með sérstakri áherslu á almannaþjónustu og skyldur þeirra gagnvart íbúum,“ segir í ályktuninni.