Fara í efni
Fréttir

„Hugsað stórt og vandað til verks“

Hið nýja hús Siglingaklúbbsins Nökkva. Ljósmynd: Hörður Geirsson.

Nýtt og glæsilegt aðstöðuhús hefur verið afhent Siglingaklúbbnum Nökkva, framkvæmdum er þar með að mestu lokið og húsið tilbúið til notkunar, þótt einhver smávægilegur frágangur sé eftir. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Framkvæmdir hafa gengið mjög vel og samkvæmt áætlun, en umsamin verklok voru 15. júlí.

Sigurgeir Svavarsson verktaki sem annaðist framkvæmdina afhenti Tryggva Jóhanni Heimissyni, formanni Nökkva, lyklana að húsinu á föstudag.

Í tilkynningu á vef félagsins segir að þetta sé „stór dagur fyrir Nökkva enda búið að bíða lengi eftir góðri aðstöðu fyrir siglinga-, kajak-, og róðrafólk og annað sjósportáhugafólk. Stjórn Nökkva vill þakka verktökum, hönnuðum, starfsfólki Akureyrarbæjar og bæjarfulltrúum sem hafa gert þetta að veruleika. Hér er hugsað stórt og vandað til verks og óhætt að segja að allir sem að þessu koma geti verið stoltir af framkvæmdinni.“

Fyrsta flokks aðstaða

Húsið eru rúmir 400 fermetrar að gólffleti, að því er segir á vef bæjarins. „Stærstur hluti þess er bátaskýli með góðri aðstöðu til viðhalds og endurbóta á bátum. Í húsinu eru einnig fyrsta flokks búningsklefar með sturtuaðstöðu og þurrkherbergi fyrir blautbúninga. Á efri hæð er félagsaðstaða, þaðan sem hægt er að ganga út á útsýnissvalir sem tengjast með stigum til tveggja átta.“

Á vef Akureyrar segir að uppbygging á félagssvæði Nökkva hafi verið fyrsta atriðið á lista í skýrslu um uppbyggingu íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar og forgangsröðun til ársins 2035 sem bæjarstjórn samþykkti í fyrra. „Afar ánægjulegt er að verkefnið sé í höfn, enda gjörbreytir það aðstöðu siglingafólks og annarra sem stunda sjósport á Akureyri, auk þess húsið og umhverfi þess er á áberandi stað í bænum og er glæsilegur hluti af bæjarmyndinni.“

Stefnt er að því að halda formlega vígsluathöfn áður en langt um líður.

Sigurgeir Svavarsson, verktaki, til vinstri, og Tryggvi Jóhann Heimisson, formaður Nökkva.

Fyrstu skóflustungurnar! Þremenningarnir, sem stóðu að stofnun Nökkva (sem hét reyndar fyrst Sjóferðafélag Akureyrar) haustið 1963, með skóflurnar á lofti 10. maí 2013. Frá vinstri: Gunnar Árnason, sem var fyrsti formaðurinn, Dúi Eðvaldsson og Hermann Sigtryggsson. Að baki þeim er Rúnar Þór Björnsson, formaður Nökkva á þessum merkisdegi, en hann gegndi formennsku hátt í tvo í áratugi. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Svæði Siglingaklúbbsins Nökkva í Innbænum. Ljósmynd: Hörður Geirsson.