Mannlíf
Hrjóstrugan mel má gera að góðum beitarhaga
01.07.2026 kl. 10:45
Fyrir viku fjallaði Sigurður Arnarson um beit í skógum, í pistli sínum í röðinni Tré vikunnar, „hvað ber að hafa í huga þegar skógar eru beittir og hvaða áhrif beitin getur haft. Í þeim pistli lofuðum við að birta síðar pistil um hagaskógrækt. Nú reynum við að efna það,“ segir hann í upphafi pistils í dag.
„Hugtakið hagaskógrækt nær yfir skipulagða skógrækt sem er ætlað að bæta bithaga. Með tímanum myndast betra skjól, betri jarðvegur og jafnari jarðraki. Tilgangurinn er að auka uppskeru og hagsæld búfjár. Aukaafurð í þeirri ræktun getur svo orðið það timbur sem til fellur,“ segir Sigurður. „Á um tveimur áratugum má gera hrjóstrugan mel að góðum beitarhaga ef rétt er að verki staðið. Til að það gangi þarf tímabundna beitarfriðun og réttar trjátegundir. Það var Pétur Halldórsson, sem setið hefur í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga, sem stakk upp á að kalla slíka skógrækt hagaskógrækt. Hugtakið nær hvorki yfir alla skógrækt né skógarbeit hvernig sem hún er til komin.“
Meira hér: Hagaskógrækt