Hríseyjargata 6 – enn eitt 100 ára húsið
„Neðarlega á Oddeyrinni, nokkurn veginn á mörkum Oddeyrar sjálfrar og Oddeyrartanga liggur ein af mörgum þvergötunum út úr Strandgötu. Á Tanganum eru þvergöturnar kenndar við örnefni út með Eyjafirði beggja vegna, sbr. Hjalteyrargata, Laufásgata, Kaldbaksgata og Grímseyjargata en efst og austast þessara gatna er Hríseyjargata.“
Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blka Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins; sjötti pistill hans um hús sem eiga 100 ára afmæli á þessu ári.
Um Hríseyjargötu segir Arnór Bliki: „Er hún frábrugðin framangreindum götum að því leyti, að hún er eingöngu íbúðagata en við hinar göturnar erm fyrst og fremst iðnaður og verkstæði. Þá eru húsin við Hríseyjargötu mikið eldri, sérstaklega sunnan Gránufélagsgötunnar. Þar má líklega elsta steinsteypuhús Akureyrar, Steinöld, við Hríseyjargötu 1, sem byggð er 1903. Í raun er aðeins eitt hús sem við Hríseyjargötu sunnan Gránufélagsgötu, sem á árinu 2026 hefur ekki náð 100 ára aldri; hin 89 ára Hríseyjargata 3. Eitt hús við Hríseyjargötu á 100 ára afmæli í ár. Það er Hríseyjargata 6, sem er eitt margra húsa frá 3. áratug 20. aldar, sem Sveinbjörn Jónsson teiknaði fyrir Jónas nokkurn Jónasson frá Snæfellsnesi.“
Pistill Arnórs Blika: Hríseyjargata 6