Hringir maður bara í Bjarna Fel?
„Ég var tápmikið barn og átti ekki gott með að sitja kyrr. Snemma áttaði móðir mín sig á því að besta leiðin væri að setja mig á gæruna fyrir framan sjónvarpið meðan Enska knattspyrnan í umsjá Bjarna Felixsonar var á dagskrá. Þá sat ég, þvert á allar spár, hreyfingarlaus eins og stytta eftir Sigurjón Ólafsson, og starði á meðan markakóngurinn mikli Replay og fleiri góðir menn léku listir sínar á skjánum.“
Þannig hefst Orrablót dagsins; pistill Orra Páls Ormarssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu. Orri Páll skrifar pistil – Orrablót – annan hvern föstudag fyrir akureyri.net.
Orri heldur áfram: „Lengi eftir að útsendingu lauk kíkti ég annað slagið fyrir hornið til að kanna hvort Bjarni væri nokkuð byrjaður aftur með þáttinn. Maður þekkti ekki svo vel inn á eðli línulegrar dagskrár á þessum tíma, auk þess sem ég var ekki orðinn læs og því ekki til neins að fletta upp dagskránni í blöðunum.“
Pistill dagsins fjallar um ensku knattspyrnuna á ýmsan hátt, og er stórskemmtilegur eins og Orra Páli er von og vísa.
- Gjörið svo vel: Hringir maður bara í Bjarna Fel?