Mannlíf
Hreyfingar sem hafa tapast geta komið aftur
25.08.2026 kl. 06:00
„Það virðist einhvern veginn fylgja því að sem við eldumst þá förum við að tala meira um líkamann og það sem er að angra okkur. Bakið er eitthvað að stríða okkur, öxlin ekki alveg eins góð og hún var og það tekur aðeins lengri tíma að koma sér í gang á morgnana. “
Þannig hefst heilsupistill Guðrúnar Arngrímsdóttur sem akureyri.net birtir í dag. Hún heldur áfram:
„Við skellum síðan skuldinni á hækkandi aldur. Það er vissulega rétt að við eldumst stöðugt og líkaminn breytist með aldrinum. Ég velti því þó oft fyrir mér hvort við séum stundum aðeins of fljót að skrifa allt á aldurinn því eitt sem líkaminn er ótrúlega góður í er að aðlagast því sem við gerum og því sem við hættum að gera.“
Pistill Guðrúnar: Það er aldrei of seint að hreyfast betur