Mannlíf
Hrekkjavökutónleikar blásarasveitanna í Hofi
28.10.2026 kl. 08:00
Árlegir Hrekkjavökutónleikar Blásarasveita Tónlistarskólans á Akureyri hafa notið mikilla vinsælda og nú er komið að þeim næstu. Þeir verða haldnir í dag, miðvikudag 28. október klukkan 18 í Hamraborg, stóra salnum í Hofi.
„Draugasögukonan Urður Bergsdóttir flytur splunkunýja og ógnvekjandi hrekkjavökusögu sem vefur sig utan um taugatrekkjandi tónlist blásarasveitanna þriggja,“ segir í tilkynningu frá skólanum. „Hræðilega metnaðarfullar skreytingar munu prýða draugahúsið Hof og eru tónleikarnir ómissandi upplifun ef þið hafið hugsað ykkur að komast í hrekkjavökugírinn.“
Í tilkynningu frá Tónlistarskólanum segir einnig:
- Ókeypis aðgangur og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
- Hátt í 70 nemendur tónlistarskólans taka þátt í þessum óhugnanlega skemmtilegu tónleikum fyrir alla fjölskylduna.
- Hlökkum til að sjá ykkur – ef þið þorið!
- Stjórnendur eru: Sóley Björk Einarsdóttir og Emil Þorri Emilsson
- Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta í sínum eigin hrekkjavökuklæðnaði.
