„Höfum öll gaman af að umgangast fólk“
Þeim leiddist ekki feðgunum Ragga og Nonna – eða Ragnari Sverrissyni kaupmanni og Jóni M. Ragnarssyni framkvæmdastjóra – í morgun þegar þeir opnuðu JMJ herrafataverslunina á 70 ára afmæli verslunarinnar. Reyndar er ekki víst að þeim leiðist nokkurn tíma, eða þannig virka þeir að minnsta kosti á viðskiptavinina sem þeir þjóna. Alltaf gleði og góðvild, þjónustulundin í fyrirrúmi, mikið spjallað og ekki bara um fötin sem þeir selja.
Það var reyndar fremur rólegt stemning, en góðar móttökur eins og við mátti búast, í morgun þegar tíðindamaður akureyri.net mætti í Gránufélagsgötuna á meðal fyrstu manna strax við opnun. Fatarekkarnir komnir út á gangstétt, 70-90% afsláttur á útsöluvörum, blöðrur og allt tilheyrarndi. Afmælisveislan stendur reyndar í allan dag og von á Rúnari Eff með gítarinn núna síðdegis, spilar fyrir gesti kl. 16-17.

Allt að verða klárt í morgunsárið fyrir stöðugan straum viðskiptavina og velunnara á 70 ára afmælinu. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Rólegheitin stóðu þó ekki lengi og fljótt færðist fjör í búðina þegar aðrir fjölskyldumeðlimir komu færandi hendi með dýrnidis rjóma- og súkkulaðitertur. Gestum fjölgaði smátt og smátt. Sumir þeirra komu með heimatilbúnar gjafir, aðrir með blóm og flestir fundu sér eitthvað til að kaupa í leiðinni. Góðkunningjar og fastakúnnar knúsuðu feðgana, sögur sagðar og ekkert verið að hvísla í þessari búð. Feðgarnir tóku hverjum manni fagnandi enda er þjónusta og góð mannleg samskipti aðalsmerki verslunarinnar, eins og kom fljótt fram þegar tíðindamaður ræddi við þá feðga. Það reyndist enda ekki erfitt að fá þá til að spjalla.
JMJ sjálfur er uppistaðan í langlífi verslunarinnar
Raggi er ekki í vafa hver ástæða langlífis verslunarinnar er og nefnir tengdaföður sinn, Jón M. Jónsson, stofnanda verslunarinnar sem uppistöðuna í þeirri sögu. „Hann var rosalega duglegur maður og gerði allt vel. Hann var frægur klæðskeri hér á landi með mikla þjónustulund, sem við lærðum svo, ég af honum og svo Nonni og barnabörnin af okkur. Það er svo gaman og ég held að við öll í fyrirtækinu, við höfum svo gaman af að umgangast fólk og veita góða þjónustu. Undirstaðan er náttúrlega að vera með flotta og glæsilega vöru, þó hún kosti kannski pínu, þá er ekki spurning að það er svo gaman að selja vandaða vöru. Það er lykillinn að þessu.“
Raggi hélt upp á 60 ára starfsafmæli sitt í fyrirtækinu í nóvember í fyrra, en hann hóf semsagt störf þar um níu árum eftir stofnun fyrirtækisins. Þá var öldin önnur og öll jakkaföt sniðin og saumuð á staðnum, mátuð í tví- eða þrígang svo allt félli eins og flís við rass. Raggi er lærður klæðskeri og vann í því fyrstu árin sem lærlingur hjá tengdaföður sínum, Jóni M. Jónssyni, stofnanda JMJ, að sníða og sauma föt. Þá flutti fyrirtækið ekki inn tilbúin jakkaföt heldur bara ýmiss konar efni sem síðan varð að dýrindis jakkafötum í höndum klæðskeranna.

Að sjálfsögðu hangir uppi í búðinni mynd af Danda heitnum, sem hét fullu nafni Sigþór Bjarnason, en hann starfaði í JMJ í áratugi. Hann lést 22. júní 2023. Dandi var v el þekktur og vel liðinn af viðskiptavinum JMJ, en margir sem þekktu hann þó aðeins sem Danda, ekki undir fullu nafni. Húmorinn er auðvitað í lagi hjá þeim feðgum og spurðu þeir fyrir myndatökuna: Er greiðslan í lagi? Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Veðja stundum á rangan hest
Spurður um tískuna og breytingar eða byltingar í þeim efnum segir Raggi að vissulega séu breytingar á milli ára. Þeir fara yfirleitt fjórum sinnum á sýningar erlendis til að kaupa inn vörur og hafa verslað við sömu fyrirtækin í áraraðir. Þeir lenda því aldrei í því að vera sviknir eða kaupa köttinn í sekknum, en fyrir kemur að þeir hafa veðjað á rangan hest, keypt inn eitthvað sem hefur svo ekki selst.
Stundum kemur þó fyrir að þekkt fyrirtæki hætti rekstri, en önnur halda velli og ný koma inn. Í haust er til dæmis von á vörum frá fjórum nýjum birgjum sem þeir komust í samband við í síðustu innkaupaferð. Aðspurður segir Raggi þó ekki neinar byltingar í tískustraumum í vöruframboði í JMJ búðinni. „Nei, það eru ekki miklar byltingar í tískunni, en samt eru breytingar á milli ára og núna í haust eru til dæmis að koma inn brúnir litir. En í Joe’s, þar sem yngra fólkið verslar, þar geta verið byltingar oft og tíðum.“
Raggi grípur verðlaunagrip af hillu og sýnir ljósmyndara stoltur, bendir á að þetta hafi þeir fengið hjá stórum erlendum birgja sem sér þeim fyrir buxum. Alberto, mest seldu buxurnar í 100 ár, stendur á gripnum, og JMJ sú verslun sem selur mest allra stakra fyrirtækja af þessum buxum í Evrópu. Sama á við um nokkra gripi uppi á hillu, bindi og belti frá Monti, mesta salan er hjá JMJ.
Þekkja viðskiptavinina og þarfir þeirra
Að sjálfsögðu eru til ótal sögur úr JMJ í gegnum árin og ættu sennilega best heima í góðri bók.
Hallgrímur Valsson, þekktur krullari með meiru, rak inn nefið og stakk sögu að þeim sem þetta ritar; sögu sem sýnir hve vel Raggi þekkir viðskiptavinina. Kona Hallgríms, Guðrún Svana Zophoníasdóttir, kom einhverju sinni í búðina til að kaupa buxur og var búin að finna þær sem hún ætlaði að kaupa, en þá segir Raggi: „Nei, þessar passa ekki á karlinn,“ og vissi þá greinilega vel hvaða stærð Hallgrímur þyrfti. En buxurnar voru reyndar ekki handa Hallgrími heldur tengdaföður hans.
Ragga sjálfum finnst heldur ekkert leiðinlegt að segja sögur og fræddi tíðindamann um ýmislegt er varðar föt og samskiptin við viðskiptavini í gegnum árin, kjólföt meðal annars.
Kjólföt endast í 25 ár, sagði Raggi, og bætti við að það kæmi fyrir þegar menn kæmu í búðina, nokkuð við aldur, til að endurnýja kjólfötin hafi hann stundum verið tregur til og bent viðkomandi á að fötin myndu endast honum fram yfir 100 ára aldurinn. „Láttu mig samt fá þau,“ er samt yfirleitt svarið.
Fimm ára að tína upp tvinnakefli hjá afa sínum
Núverandi framkvæmdastjóri, Jón M. Ragnarsson, sonur Ragga Sverris, hefur eiginlega verið nánast allt sitt líf í búðinni.
„Ég hef verið í fullu starfi í 41 ár, en ég var fimm ára þegar ég byrjaði hérna uppi á saumastofu hjá afa að tína upp tvinnakefli og sópa saman tvinna, þannig að ég hef alist upp í þessu húsi og hvergi betra að vera,“ segir Nonni um starf sitt í JMJ og Joe's. Hann er 57 ára og hefur því starfað í fjölskyldufyrirtækinu frá því á unglingsárum.

Það er eiginlega regla að fjölskyldumeðlmir hefji störf hjá JMJ og Joe's á unglingsaldri. Hér eru fjórir ættliðir að störfum í versluninni. Frá vinstri: Ragnhildur Sara Ásgeirsdóttir, Jón M. Ragnarsson, Jón Helgi Ásgeirsson, Ragnar Sverrisson og Hilmar Þór Svavarsson. Þau Ragnhildur Sara og Jón Helgi eru langafabörn Ragga og Hilmar Þór er afabarn. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
„Stærstu breytingarnar eru þegar við ákváðum 1994 að opna aðra búð undir nafninu Joe's, meiri yngri manna búð þegar það var að detta niður salan. Þá voru yngri menn að átta sig á því líka að það væri komin tíska líka fyrir þá. Það er stærsta breytingin sem við höfum upplifað, opnuðum hana 1995 og hún hefur verið samhliða JMJ í öll þessi ár,“ segir Nonni spurður um stærstu breytingarnar sem hann hefur upplifað á starfsferlinum. Joe's er núna í sama rými og JMJ, opið flæði á milli.
Engar byltingar í tískunni hjá eldri viðskiptavinum? „Nei, ekki stóru byltingarnar. Bylting sem varð hjá okkur þegar við fórum í superstretch-skyrtur, það er náttúrlega bara eins og að vera í bol, bara hengt upp og allir ánægðir, konurnar alsælar, ekkert straujárn. En það eru engar stórar byltingar," segir Nonni, en rifjar þó upp miklar breytingar því til dæmis hafi leðurjakkar verið gríðarlega vinsælir á tíunda áratugnum. Hann segir það hafa svo stoppað, en sé að koma aðeins aftur.
Snýst allt um þjónustulundina
Nonni segir mjög einfalda skýringu á því hve lengi þetta fyrirtæki hefur lifað og starfað.
„Það er rosalega einfalt. Jón M. Jónsson startaði þessu fyrirtæki fyrir 70 árum. Hann lagði línurnar með þjónustustigið. Það er það sem hefur fylgt þessu fyrirtæki. Þú hlustar á kúnnann þinn, þú ert glaðlyndur, tekur á móti honum, leysir með honum vandamálin. Fólk er kannski að koma hér inn eftir að hafa misst ásvtini, brotið og bogið. Við stöndum og leysum þessa hluti með fólki, tökum utan um það ef þarf. Þetta snýst alltaf um mannlegu samskiptin, stóra brosið og hlusta á fólkið. Þegar þú stendur á gólfinu sjálfur sem eigandi fyrirtækis, þá veistu hvað kúnninn þinn er að kalla á. Þannig að alltaf þegar við förum erlendis til að versla þá erum við með fullt af glósum, hann var að tala um svona, hann var að tala um hinsegin,“ segir Nonni og segir að lokum að þeir séu einfaldlega færiband til að gleðja viðskiptavinina.
Ekki lengur saumað frá grunni
Starfsemi verslunarinnar hefur breyst frá því hún hóf störf 1956. Á þeim árum voru alls konar innflutningshöft og ekki verið að flytja inn tilbúin jakkaföt heldur var keypt efni og allt unnið frá grunni enda var Jón M. Jónsson þekktur klæðskeri og Raggi tengdasonur hans lærði af honum.

Ragnar Sverrison, Corina Clara Paduret og Jón M. Ragnarsson. Corina er í fullu starfi við saumaskap hjá fyrirtækinu. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Þrátt fyrir að ekki séu lengur saumuð jakkaföt frá grunni í JMJ er fyrirtækið með saumakonu í fullu starfi við að stytta og laga eftir þörfum viðskiptavinanna. Corina Clara Paduret flutti til Íslands frá Rúmeníu 2014 og lenti fljótlega í radarnum hjá þeim í JMJ. Hún hefur nú starfað við sauma hjá fyrirtækinu í 11 ár og hefur nóg að gera, stundum þarf snör handtök því auðvitað kemur fyrir að viðskiptavinir komi á síðustu stundu, jafnvel á leið í brúðkaup síðar sama dag, eða rétt fyrir hádegi á aðfangadag.
Viðskiptavinir og velunnarar streymdu í búðina á þeim eina og hálfa tíma sem tíðindamaður frá akureyri.net dvaldi þar, gæddi sér á tertum og tók myndir. Hér að neðan má sjá hluta af afrakstrinum. Myndir: Haraldur Ingólfsson.