Fara í efni
Fréttir

Hnúfubak rak á land sunnan Grenivíkur

Myndir af vef Hvalasafnsins á Húsavík

Dauðan Hnúfubak rak á land í grennd við Grenivík fyrir helgi og liggur hann nú fjörunni neðan við Áshól, næsta bæ sunnan við Laufás.

Greint er frá hvalrekanum á vef vef Hvalasafnsins á Húsavík en starfsmenn safnsins fóru í vettvangsferð til að skoða dýrið. „Við heimsókn sína hittu starfsmenn safnsins Önnu Báru Bergvinsdóttur, bónda á Áshóli og rekstraraðila gistiheimilis á staðnum. Hún sagði að fyrst hefði hún séð hvalhræið fast á grynningum nokkuð langt frá landi, en hann hafi svo losnað á háflóði og rekið nær. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Anna Bára verður vitni að hvalreka á þessum slóðum – á síðasta ári þurfti hún að nota dráttarvél til að ýta hvalhræi sem rak á land á næsta bæ aftur á flot til að losna við ólyktina sem fylgir slíkum reka,“ segir á vef Hvalasafnsins.

Hnúfubakurinn reyndist vera 10 metra langt kvendýr. „Með aðstoð samstarfsaðila okkar hjá hvalarannsóknarsamtökunum Whale Wise tókst að bera kennsl á einstaklinginn. Hver hnúfubakur hefur einstakt mynstur af hvítum og svörtum skellum neðan á sporðblöðkunni, sem gerir vísindamönnum kleift að bera kennsl á dýrin og fylgjast með ferðum þeirra,“ segir á vef Hvalasafnsins.

Hnúfubakur er ein algengasta hvalategundin sem sést í hvalaskoðunarferðum við Ísland. Þar sem þeir lyfta sporðblöðkunni oft hátt upp úr sjónum áður en þeir kafa er tiltölulega auðvelt að safna ljósmyndum í gagnabanka fyrir rannsóknir.

„Þessi einstaklingur bar einkennismerkið HW-MN0104313 á vefsíðunni Happywhale og sást fyrst í Eyjafirði fyrr á þessu ári. Samkvæmt hvalarannsakandanum og skipstjóranum Babsi Neubarth sást þessi hvalur á lífi fyrir einungis nokkrum dögum.“

Nánari upplýsingar um hvalinn má finna hér: happywhale.com/individual/142095

„Dánarorsök er ókunn eins og er, en engir sjáanlegir áverkar fundust á dýrinu. Hafrannsóknarstofnun hefur verið látin vita og líklegt er að starfsmenn Rannsóknarstöðvar Háskóla Íslands á Húsavík fari á næstu dögum til að taka sýni og mælingar,“ segir á vef Hvalasafnsins.