Fara í efni
Mannlíf

Hlýindi eða hlý-vindi?

Veðrið leikur við Akureyringa og gesti þeirra í dag, einu sinni sem oftar. Á hádegi mældist 22,8 gráðu hiti á veðurstöðinni við Krossanesbraut, samkvæmt vef Veðurstofu Íslands. Eitthvað er þó vindurinn að slá á raunhitann, en góðviðrinu undanfarna daga hefur fylgt töluverður strekkingur. 

Áfram má búast við hlýindum – eða ef til vill mætti alveg eins notast við „hlý-vindi“ eins og hlýindi – vegna strekkingsvinda sem blásið hafa úr suðri undanfarna daga. Hlýjast verður á austurhelmingi landsins, en kólnar þó heldur á morgun. Á föstudag verður léttskýjað á austurhelmingi landsins, vestlæg átt, 3-10 metrar á sekúndu og hiti allt að 23 gráðum.

Á laugardag er spáð suðvestlægri átt, jafnvel lítilsháttar vætu með norðurströndinni og hiti allt að 23 gráðum, hlýjast á Austfjörðum. Áfram suðvestlæg átt á sunnudag, bjart og hlýjast á austanverðu landinu og hiti að 23 gráðum.

Fjölmenni var í miðbænum í dag enda stórt farþegaskip við festar. Reyndar vakti athygli þess sem þetta ritar og smellti af meðfylgjandi myndum hve mikið klæddir margir gestirnir voru sem spókuðu sig í miðbænum. Á stuttbuxum og bol með síma í hönd fangaði blaðamaður kappklædda gesti og má leiða að því líkum að yfirgnæfandi meirihluti þeirra séu farþegar skemmtiferðaskipsins Celebrity Silhouette sem lagðist að Tangabryggju í morgun og verður eitthvað fram yfir kvöldmat.